Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 424. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 763  —  424. mál.




Fyrirspurn



til mennta- og menningarmálaráðherra um endurskoðun
á rekstrarformi háskóla og framhaldsskóla.

Frá Guðbjarti Hannessyni.


     1.      Hvað felst í endurskoðun sem fram kemur í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2014 að standi til á rekstrarformi háskóla og framhaldsskóla?
     2.      Er vinna hafin við þá endurskoðun og hverjir munu koma að henni?


Skriflegt svar óskast.