Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 538. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 903  —  538. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um samningshagsmuni
Finna og Íslendinga gagnvart Evrópusambandinu.

Frá Össuri Skarphéðinssyni.


     1.      Hversu stór hluti af landsframleiðslu Íslendinga á rætur að rekja til sjávarútvegs?
     2.      Hversu stór hluti af landsframleiðslu Finna á rætur að rekja til landbúnaðar í nyrstu héruðum Finnlands sem njóta sérlausnar hvað landbúnað varðar samkvæmt aðildarsamningi Finnlands við Evrópusambandið?


Skriflegt svar óskast.