Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 250. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 1084 — 250. mál.
1. Umdæmi sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu.
2. Umdæmi sýslumannsins á Vesturlandi.
3. Umdæmi sýslumannsins á Vestfjörðum.
4. Umdæmi sýslumannsins á Norðurlandi vestra.
5. Umdæmi sýslumannsins á Norðurlandi eystra.
6. Umdæmi sýslumannsins á Austurlandi.
7. Umdæmi sýslumannsins á Suðurlandi.
8. Umdæmi sýslumannsins í Vestmannaeyjum.
9. Umdæmi sýslumannsins á Suðurnesjum.
Umdæmamörk sýslumannsembætta skv. 1. mgr. skulu ákveðin í reglugerð sem ráðherra setur með hliðsjón af skipulagi annarrar opinberrar þjónustu í umdæminu og að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga, landshlutasamtök sveitarfélaga og viðkomandi sýslumenn.
Ráðherra ákveður í reglugerð hvar aðalskrifstofur sýslumanna skuli staðsettar. Ráðherra ákveður einnig í reglugerð, að höfðu samráði við viðkomandi sýslumann, hvar aðrar sýsluskrifstofur verða starfræktar og hvaða þjónustu þar skuli veita.
Sýslumaður skal, auk almennra hæfisskilyrða til þess að hljóta skipun í embætti á vegum ríkisins, fullnægja eftirtöldum skilyrðum:
a. Hefur náð 30 ára aldri.
b. Hefur íslenskan ríkisborgararétt.
c. Er svo á sig kominn andlega og líkamlega að hann geti gegnt embættinu.
d. Er lögráða og hefur aldrei misst forræði á búi sínu.
e. Hefur hvorki gerst sekur um refsivert athæfi sem telja má svívirðilegt að almenningsáliti né sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem sýslumenn verða almennt að njóta.
f. Hefur lokið fullnaðarprófi í lögfræði með embættis- eða meistaraprófi eða háskólaprófi í þeirri grein sem metið verður jafngilt.
Ef sýslumanni er veitt lausn frá embætti, leyfi frá störfum eða hann forfallast af öðrum ástæðum getur ráðherra falið öðrum sýslumanni að gegna embættinu til allt að eins árs í senn og skal kjararáð ákveða þóknun vegna þess. Ráðherra getur einnig sett annan mann sem fullnægir skilyrðum 2. mgr. til að gegna embættinu um stundarsakir í forföllum sýslumanns, þó aldrei lengur en til eins árs.
Ráðherra getur ákveðið að fela sýslumanni eða fulltrúa hans embættisverk annars sýslumanns.
Með samþykki ráðherra geta sýslumenn annast framkvæmd verkefna fyrir aðrar ríkisstofnanir eða stjórnvöld með sérstökum samningi, enda standi ákvæði laga því ekki í vegi.
Sýslumaður ræður starfslið við embætti sitt og ákveður aðsetur þess á aðalskrifstofu eða öðrum sýsluskrifstofum. Löglærðir fulltrúar sýslumanns skulu fullnægja skilyrðum b–f-liðar 2. mgr. 3. gr.
Sýslumanni er heimilt að ákveða að löglærður fulltrúi sé staðgengill hans, enda fullnægi hann skilyrðum til skipunar í embætti sýslumanns. Staðgengill sinnir störfum sýslumanns í hans fjarveru, svo sem í sumarleyfum og öðrum styttri leyfum, enda hafi ráðherra ekki falið öðrum að gegna embættinu í fjarveru sýslumanns á grundvelli 3. mgr. 3. gr.
a. að vinna með ráðuneytinu að stefnumótun fyrir sýslumannsembættin í heild og gera tillögur um hvað eina sem getur orðið til úrbóta í störfum sýslumanna eða löggjöf sem um verkefni þeirra gildir,
b. að vinna að sameiginlegum verkefnum sýslumanna, svo sem útgáfu ársskýrslu fyrir embættin í heild, að vera til ráðgjafar um þróun starfs- og upplýsingakerfa embættanna, að annast sameiginlega vefsíðu embættanna og að stuðla að símenntun og þjálfun starfsmanna þeirra.
Nefndinni er heimilt að fela sýslumanni framkvæmd einstakra verkefna undir yfirstjórn hennar.
Frá samþykkt laga þessara og fram til 1. janúar 2015 er ráðherra heimilt að undirbúa stofnun nýrra sýslumannsembætta, sbr. 1.–7. tölul. 1. mgr. 2. gr., og aðskilnað löggæslu frá starfsemi sýslumannsins í Vestmannaeyjum, m.a. með setningu þeirra reglugerða um skipulag allra embætta sýslumanna sem kveðið er á um í greininni. Við gerð þeirra reglugerða þarf ekki að gæta að ákvæðum 2. gr. laga nr. 92/1989, um framkvæmdarvald ríkisins í héraði. Þegar lög þessi öðlast gildi skal sú reglugerð sem hér er kveðið á um eiga stoð í 2. gr. laga þessara. Þá skal ráðherra einnig heimilt að taka ákvörðun um skipun eða flutning sýslumanna í ný embætti samkvæmt ákvæðum laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, þeir hafi heimild til þess að undirbúa starfsemi hinna nýju embætta, þ.m.t. starfsmannahald. Við ráðstöfun starfa eða embætta samkvæmt þessu bráðabirgðaákvæði þarf ekki að gæta að skyldu til að auglýsa laus störf til umsóknar, sbr. 7. gr. laga nr. 70/1996. Skulu ný embætti taka við þeim réttindum og skyldum sem einstakir embættismenn hafa áunnið sér, þ.m.t. samkvæmt ákvæðum laga nr. 70/1996.
Skipun sýslumanna í hin nýju embætti tekur formlega gildi 1. janúar 2015. Þeir sem við samþykkt laga þessara eru starfandi eða skipaðir sýslumenn og kjósa að sækjast eftir nýju embætti skulu njóta forgangs til skipunar í hin nýju embætti sýslumanna skv. 2. gr. laga þessara. Þau embætti sýslumanna sem kveðið er á um í núgildandi lögum, nr. 92/1989, verða lögð niður að undanskildum embættum sýslumannsins í Reykjanesbæ og sýslumannsins í Vestmannaeyjum. Í þeim tilvikum þar sem sýslumenn hljóta ekki skipun í ný embætti sýslumanna skal leitast við að bjóða þeim störf hjá embættum lögreglu eða sýslumanna eða að öðrum kosti störf annars staðar á umsýslusviði þess ráðuneytis sem fer með málefni sýslumanna. Þeir sem skipaðir eru sýslumenn skulu eiga þess kost að lýsa yfir að þeir muni ekki sækjast eftir nýjum embættum sýslumanna samkvæmt lögum þessum og hefja þeir þá töku biðlauna samkvæmt ákvæði 34. gr. laga nr. 70/1996 þegar embætti þeirra hefur verið lagt niður samkvæmt ákvæðum þessara laga.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 1084 — 250. mál.
Frumvarp til laga
um framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði.
(Eftir 2. umræðu, 12. maí.)
1. gr.
2. gr.
1. Umdæmi sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu.
2. Umdæmi sýslumannsins á Vesturlandi.
3. Umdæmi sýslumannsins á Vestfjörðum.
4. Umdæmi sýslumannsins á Norðurlandi vestra.
5. Umdæmi sýslumannsins á Norðurlandi eystra.
6. Umdæmi sýslumannsins á Austurlandi.
7. Umdæmi sýslumannsins á Suðurlandi.
8. Umdæmi sýslumannsins í Vestmannaeyjum.
9. Umdæmi sýslumannsins á Suðurnesjum.
Umdæmamörk sýslumannsembætta skv. 1. mgr. skulu ákveðin í reglugerð sem ráðherra setur með hliðsjón af skipulagi annarrar opinberrar þjónustu í umdæminu og að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga, landshlutasamtök sveitarfélaga og viðkomandi sýslumenn.
Ráðherra ákveður í reglugerð hvar aðalskrifstofur sýslumanna skuli staðsettar. Ráðherra ákveður einnig í reglugerð, að höfðu samráði við viðkomandi sýslumann, hvar aðrar sýsluskrifstofur verða starfræktar og hvaða þjónustu þar skuli veita.
3. gr.
Sýslumaður skal, auk almennra hæfisskilyrða til þess að hljóta skipun í embætti á vegum ríkisins, fullnægja eftirtöldum skilyrðum:
a. Hefur náð 30 ára aldri.
b. Hefur íslenskan ríkisborgararétt.
c. Er svo á sig kominn andlega og líkamlega að hann geti gegnt embættinu.
d. Er lögráða og hefur aldrei misst forræði á búi sínu.
e. Hefur hvorki gerst sekur um refsivert athæfi sem telja má svívirðilegt að almenningsáliti né sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem sýslumenn verða almennt að njóta.
f. Hefur lokið fullnaðarprófi í lögfræði með embættis- eða meistaraprófi eða háskólaprófi í þeirri grein sem metið verður jafngilt.
Ef sýslumanni er veitt lausn frá embætti, leyfi frá störfum eða hann forfallast af öðrum ástæðum getur ráðherra falið öðrum sýslumanni að gegna embættinu til allt að eins árs í senn og skal kjararáð ákveða þóknun vegna þess. Ráðherra getur einnig sett annan mann sem fullnægir skilyrðum 2. mgr. til að gegna embættinu um stundarsakir í forföllum sýslumanns, þó aldrei lengur en til eins árs.
Ráðherra getur ákveðið að fela sýslumanni eða fulltrúa hans embættisverk annars sýslumanns.
4. gr.
Með samþykki ráðherra geta sýslumenn annast framkvæmd verkefna fyrir aðrar ríkisstofnanir eða stjórnvöld með sérstökum samningi, enda standi ákvæði laga því ekki í vegi.
5. gr.
Sýslumaður ræður starfslið við embætti sitt og ákveður aðsetur þess á aðalskrifstofu eða öðrum sýsluskrifstofum. Löglærðir fulltrúar sýslumanns skulu fullnægja skilyrðum b–f-liðar 2. mgr. 3. gr.
Sýslumanni er heimilt að ákveða að löglærður fulltrúi sé staðgengill hans, enda fullnægi hann skilyrðum til skipunar í embætti sýslumanns. Staðgengill sinnir störfum sýslumanns í hans fjarveru, svo sem í sumarleyfum og öðrum styttri leyfum, enda hafi ráðherra ekki falið öðrum að gegna embættinu í fjarveru sýslumanns á grundvelli 3. mgr. 3. gr.
6. gr.
a. að vinna með ráðuneytinu að stefnumótun fyrir sýslumannsembættin í heild og gera tillögur um hvað eina sem getur orðið til úrbóta í störfum sýslumanna eða löggjöf sem um verkefni þeirra gildir,
b. að vinna að sameiginlegum verkefnum sýslumanna, svo sem útgáfu ársskýrslu fyrir embættin í heild, að vera til ráðgjafar um þróun starfs- og upplýsingakerfa embættanna, að annast sameiginlega vefsíðu embættanna og að stuðla að símenntun og þjálfun starfsmanna þeirra.
Nefndinni er heimilt að fela sýslumanni framkvæmd einstakra verkefna undir yfirstjórn hennar.
7. gr.
8. gr.
9. gr.
10. gr.
Ákvæði til bráðabirgða.
I.

II.
III.
IV.