Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 397. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 1192  —  397. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Katrínu Júlíusdóttur
um afnám verðtryggingar.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvenær hyggst ráðherra leggja fram frumvarp til laga um afnám verðtryggingar eins og boðað hefur verið og hvaða leiðir eru til skoðunar á grundvelli skýrslu sérfræðingahóps um afnám verðtryggingar af nýjum neytendalánum?

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum 9. maí sl. framhald vinnu við afnám verðtryggingar af nýjum neytendalánum.
    Skýrsla sérfræðihóps um afnám verðtryggingar af neytendalánum var birt í lok janúar. Síðan þá hefur verkefnisstjórn um framtíðarskipan húsnæðismála haft tillögur meiri hluta og minni hluta nefndarinnar til skoðunar. Í nýútkominni skýrslu verkefnastjórnar er lagt til að lán húsnæðislánafélaga verði til framtíðar óverðtryggð, enda hafi nauðsynlegar kerfisbreytingar og mótvægisaðgerðir gert það kleift.
    Í framhaldi af vinnu verkefnisstjórnarinnar verður nú hafist handa við að innleiða tillögur meiri hluta sérfræðihópsins frá janúar sl. með hliðsjón af tillögum minni hluta sérfræðihópsins. Meiri hluti sérfræðihópsins lagði til að frá og með 1. janúar 2015 yrðu stigin veigamikil skref í átt að fullu afnámi verðtryggingar nýrra neytendalána en vinna við áætlun um fullt afnám yrði hafin eigi síðar en á árinu 2016 þegar reynsla yrði komin á þær breytingar sem hópurinn lagði til að gerðar yrðu í ársbyrjun 2015. Breytingarnar eru eftirfarandi:
     a.      óheimilt verði að bjóða neytendum verðtryggð lán með jöfnum greiðslum til lengri tíma en 25 ára,
     b.      lágmarkstími nýrra verðtryggðra neytendalána verði lengdur í allt að 10 ár,
     c.      takmarkanir verði gerðar á veðsetningu vegna verðtryggðra íbúðalána og
     d.      hvatar auknir til töku og veitingar óverðtryggðra lána.
    Í áliti minni hlutans er varpað ljósi á mótvægisaðgerðir sem grípa verði til í því skyni að afnema verðtryggingu. Í tillögum verkefnisstjórnar um framtíðarskipan húsnæðismála eru lagðar til ýmsar breytingar sem koma til móts við álit minni hluta sérfræðihópsins og auðvelda afnám verðtryggingar á næstu árum. Í áliti minni hluta sérfræðihópsins er einnig bent á hættuna á ofmati á verðbólgumælingum vegna innbyggðrar skekkju, eða vísitölubjaga. Forsætisráðuneytið mun óska eftir skýrslu frá Hagstofu Íslands um vísitölubjaga og áhrif hans.
    Næstu skref í vinnu við afnám verðtryggingar verða eftirfarandi:
     1.      Fjármála- og efnahagsráðuneytið mun hafa umsjón með vinnu við útfærslu nefndarinnar hvað varðar skilyrði þess að veita óverðtryggð lán.
     2.      Velferðarráðuneytið mun hafa umsjón með aðgerðum til að auka hvata til töku og veitingar óverðtryggðra lána í framhaldi af skýrslu verkefnisstjórnar um framtíðarskipan húsnæðismála.
     3.      Forsætisráðuneytið mun skipa starfshóp um leiðir til að sporna við því að sjálfvirkar hækkanir á vöru og þjónustu og tenging ýmissa skammtímasamninga við vísitölu neysluverðs kyndi undir verðbólgu.
     4.      Ráðherranefnd um úrlausnir í skuldamálum heimilanna mun skipa verðtryggingarvakt til að tryggja samfellu í framgangi áætlunar um afnám verðtryggingar af nýjum neytendalánum.