Ferill 43. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 43  —  43. mál.




Fyrirspurn



til fjármála- og efnahagsráðherra um fjármálastöðugleikaráð og kerfisáhættunefnd.

Frá Steingrími J. Sigfússyni.


     1.      Hefur fjármálastöðugleikaráð hafið störf og sett sér starfsreglur, sbr. lög nr. 66/2014?
     2.      Hefur ráðherra skipað sérfræðing í málefnum fjármálamarkaðar eða hagfræði í kerfisáhættunefnd og hefur nefndin hafið störf?
     3.      Hvenær er þess að vænta að fjármálastöðugleikaráð geri í fyrsta sinn opinberlega grein fyrir störfum sínum, sbr. 10. gr. laga nr. 66/2014?