Ferill 164. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 169  —  164. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um þjónustusamning um líffæri.

Frá Silju Dögg Gunnarsdóttur.


     1.      Við hvaða aðila er núverandi þjónustusamningur um líffæri? Hver er kostnaðurinn við þann samning á ári?
     2.      Við hvaða aðila var fyrri samningur? Hvað kostaði sá samningur á ári miðað við núverandi verðlag?
     3.      Hefur ráðherra skoðað hvort rétt sé að endurskoða gildandi samning árlega með tilliti til kostnaðar, biðtíma eftir líffærum og lengd biðlista?
     4.      Telur ráðherra biðtímann og fjölda ígræðslna innan þeirra marka sem eru ásættanleg?


Skriflegt svar óskast.