Ferill 171. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 180  —  171. mál.




Fyrirspurn



til fjármála- og efnahagsráðherra um sparnað af sameiningu ráðuneyta.

Frá Þorsteini Sæmundssyni.


     1.      Hver var heildarkostnaðurinn við sameiningu ráðuneyta á síðasta kjörtímabili?
     2.      Hvaða áhrif höfðu sameiningarnar á rekstrarkostnað Stjórnarráðsins og hversu mikið hefur sparast á ári síðan þær voru gerðar?
     3.      Hvernig hefur fjöldi stöðugilda þróast á sama tíma?
     4.      Hvað eru skrifstofustjórar án skrifstofu margir? Hvernig hefur fjöldi þeirra þróast frá árinu 2009?


Skriflegt svar óskast.