Ferill 173. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 182 — 173. mál.
Fyrirspurn
til umhverfis- og auðlindaráðherra um landvörslu.
Frá Svandísi Svavarsdóttur.
1. Hvaða greining liggur að baki fjölda landvarða á friðlýstum svæðum og í þjóðgörðum?
2. Hversu margar voru landvarðavikur á árunum 2009–2014?
3. Hefur landvarsla haldist í hendur við aukinn fjölda ferðamanna undanfarin ár?
4. Hversu mikið fjármagn hefur verið lagt í landvörslu hvert ár 2009–2014, skipt eftir friðlýstum svæðum og þjóðgörðum?
Skriflegt svar óskast.