Ferill 262. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 309  —  262. mál.




Fyrirspurn



til fjármála- og efnahagsráðherra um mótvægisaðgerðir
vegna hugsanlegs gengisfalls íslensku krónunnar.


Frá Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur.



    Fer fram undirbúningur af hálfu ráðherra á mótvægisaðgerðum til að koma í veg fyrir höfuðstólshækkun verðtryggðra lána ef til gengisfalls krónunnar kemur vegna:
     a.      losunar fjármagnshafta,
     b.      þungrar greiðslubyrði erlendra skuldbindinga þjóðarbúsins?