Ferill 278. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 338 — 278. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og menningarmálaráðherra um sölu á Ríkisútvarpinu
eða einstökum einingum þess.
Frá Birni Val Gíslasyni.
1. Áformar ráðherra að leita heimildar Alþingis til að selja Rás 2 Ríkisútvarpsins og ef svo er:
a. hvers vegna er salan áformuð,
b. hefur farið fram verðmat á eignum og hvert er áætlað söluverð Rásar 2, sundurliðað eftir helstu þáttum söluverðs, og
c. hefur ráðherra eða embættismenn ráðuneytisins rætt við eða átt í öðrum samskiptum við hugsanlega kaupendur og þá hvaða aðila?
2. Hefur ráðherra í hyggju að leita heimildar Alþingis til að selja aðrar deildir eða einingar Ríkisútvarpsins eða Ríkisútvarpið í heild og ef svo er:
a. hvers vegna er salan áformuð,
b. hvaða deildir eða einingar er áformað að selja,
c. hefur verið gert verðmat á þeim eignum sem til greina kemur að selja og hvert er áætlað söluverð þeirra, og
d. hefur ráðherra eða embættismenn ráðuneytisins rætt við eða átt í öðrum samskiptum við hugsanlega kaupendur umræddra eigna og þá hvaða aðila?
Skriflegt svar óskast.