Ferill 308. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 377  —  308. mál.




Fyrirspurn



til mennta- og menningarmálaráðherra um sóknaráætlun
vegna lista, menningar og nýsköpunar.

Frá Katrínu Jakobsdóttur.


     1.      Mun áætlun fyrir listir, menningu og annað nýsköpunarstarf sem forsætisráðherra sagði í áramótaávarpi 31. desember 2013 að unnið væri að á vegum mennta- og menningarmálaráðherra og ríkisstjórnarinnar birtast á þessu ári eins og fullyrt var í ávarpinu?
     2.      Hvaða aðilar hafa verið kallaðir til samráðs við gerð áætlunarinnar?


Skriflegt svar óskast.