Ferill 334. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 411 — 334. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og menningarmálaráðherra um verkefnið Nám er vinnandi vegur.
Frá Páli Val Björnssyni.
1. Hver er staða verkefnisins Nám er vinnandi vegur? Stendur til að halda því áfram? Ef svo er, í hvaða mynd?
2. Var þeim skólastofnunum sem gefinn var kostur á að senda inn hugmyndir varðandi verkefnið haustið 2013 svarað? Ef ekki, hvers vegna?
3. Hverjir fengu úthlutað því fjármagni sem ætlað er í þennan lið í fjárlögum fyrir árið 2014?
Skriflegt svar óskast.