Ferill 288. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 424 — 288. mál.
Svar
iðnaðar- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn frá Birni Val Gíslasyni um flutning stofnana.
Er fyrirhugað að flytja höfuðstöðvar eða starfsstöðvar einhverra þeirra stofnana sem undir ráðherra heyra? Ef svo er, óskast greint frá því hvaða starfsemi á í hlut og hvaðan og hvert starfsemin verður flutt.
Engin ákvörðun liggur fyrir um flutning höfuðstöðva eða starfsstöðva þeirra stofnana sem undir iðnaðar- og viðskiptaráðherra heyra.