Ferill 286. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 439  —  286. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Birni Val Gíslasyni um flutning stofnana.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Er fyrirhugað að flytja höfuðstöðvar eða starfsstöðvar einhverra þeirra stofnana sem undir ráðherra heyra? Ef svo er, óskast greint frá því hvaða starfsemi á í hlut og hvaðan og hvert starfsemin verður flutt.
    
    Heilbrigðisþjónusta er rekin um land allt og starfsstöðvar sem veita slíka þjónustu eru dreifðar um landið. Engar fyrirætlanir um tilflutning stofnana eða starfsstöðva liggja fyrir af hálfu ráðherra.