Ferill 378. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 507 — 378. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um ávísun kannabiss í lækningaskyni.
Frá Jóni Þór Ólafssyni.
Hvað þarf til svo að læknar megi ávísa kannabisi í lækningaskyni á Íslandi? Getur ráðherra eða önnur heilbrigðisyfirvöld gert það heimilt án breytinga á lögum og þá hvernig? Ef lagabreytinga er þörf, hvaða breytingar eru það?
Skriflegt svar óskast.