Ferill 287. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 538  —  287. mál.




Svar


félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn
frá Birni Val Gíslasyni um flutning stofnana.

    
    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Er fyrirhugað að flytja höfuðstöðvar eða starfsstöðvar einhverra þeirra stofnana sem undir ráðherra heyra? Ef svo er, óskast greint frá því hvaða starfsemi á í hlut og hvaðan og hvert starfsemin verður flutt.

    Ekki hafa verið teknar ákvarðanir um flutning höfuðstöðva eða starfsstöðva stofnana sem heyra undir félags- og húsnæðismálaráðherra.