Ferill 399. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 558 — 399. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um skiptingu skuldaniðurfærslu eftir landshlutum.
Frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur.
1. Hvernig skiptist heildarfjárhæðin sem varið verður til niðurfærslu verðtryggðra fasteignaveðlána einstaklinga milli framteljenda í mismunandi landshlutum? Svar óskast sundurliðað eftir kjördæmaskipaninni 1959–1999.
2. Hver er meðalfjárhæð skuldaniðurfærslunnar á framteljanda í hverjum framangreindra landshluta?
3. Hvernig skiptist heildarfjárhæðin sem varið verður til lækkunar verðtryggðra fasteignaveðlána einstaklinga milli framteljenda í þéttbýli annars vegar og dreifbýli hins vegar?
4. Hver er meðalfjárhæð skuldaniðurfærslunnar á framteljanda í þéttbýli annars vegar og dreifbýli hins vegar?
Skriflegt svar óskast.