Ferill 431. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 662  —  431. mál.




Fyrirspurn



til mennta- og menningarmálaráðherra um framtíð Hólaskóla – Háskólans á Hólum.

Frá Guðbjarti Hannessyni.


     1.      Hver eru áform ráðherra varðandi framtíð Hólaskóla?
     2.      Hefur ráðherra kynnt tillögur um faglega og fjárhagslega framtíð skólans og ef svo er, hvaða gögn eru til grundvallar tillögunum og hverjum hafa þær verið kynntar?
     3.      Hefur ráðherra áform um sameiningu skólans við aðra háskóla? Ef svo er, um hvaða háskóla ræðir? Liggur fyrir fullmótuð áætlun um slíka sameiningu og skiptingu verkefna milli þeirra háskóla sem yrðu sameinaðir? Liggur fyrir greining á áhrifum sameiningar á námsframboð og rannsóknir? Liggur fyrir kostnaðarmat vegna slíkrar sameiningar?
     4.      Hver eru áform ráðherra varðandi skuldir skólans og fjárveitingar til hans? Hefur ráðherra lagt fram tillögur þar að lútandi?
     5.      Er unnið að varanlegri lausn á fjárhagsvanda skólans? Ef svo er, hverjir koma að þeirri vinnu?


Skriflegt svar óskast.