Ferill 444. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 774  —  444. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Jóni Þór Ólafssyni
um forgang ráðherra og þingmanna í heilbrigðiskerfinu.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Veit ráðherra til þess að ráðherrar og þingmenn njóti forgangs í heilbrigðiskerfinu? Ef svo er, í hverju er hann fólginn? Ef ekki, mun ráðherra láta rannsaka hvort svo sé (og þá sér í lagi vegna eftirfarandi orða fyrrverandi landlæknis, Ólafs Ólafssonar, í viðtali við Fréttatímann 28. nóvember sl. um heilbrigðismál: „Einhvern veginn er það líka þannig að ráðherrar og þingmenn lenda ekki á biðlistum.“)?
     2.      Ef það reynist rétt að ráðherrar og þingmenn hafi forgang í heilbrigðiskerfinu, mun ráðherra sjá til þess að sá forgangur sé lagður af?


    Ráðuneytinu hafa aldrei borist nokkrar vísbendingar um að ráðherrar eða þingmenn njóti forgangs í heilbrigðiskerfinu og telur engar forsendur fyrir því að láta rannsaka nánar óljósar fullyrðingar fyrrverandi landlæknis í þá veru að ráðherrar eða þingmenn séu teknir fram fyrir aðra og lendi ekki á biðlistum.