Ferill 439. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 825  —  439. mál.




Svar


innanríkisráðherra við fyrirspurn frá Helga Hjörvar
um nothæfisstuðul flugvalla.

    
    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hver er nothæfisstuðull eftirtalinna flugvalla út frá viðmiðum Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO), sbr. skýrslu verkfræðistofunnar EFLU um Reykjavíkurflugvöll:
    a.     Akureyrarflugvallar,
    b.     Egilsstaðaflugvallar,
    c.     Ísafjarðarflugvallar?


    Nothæfisstuðull flugvalla er m.a. reiknaður út frá veðurþáttum sem hafa takmarkandi áhrif á flugvélar í lendingu og flugtaki. Í 14. viðauka við Chicago-samninginn (stofnskrá Alþjóðaflugmálastofnunarinnar) er nothæfisstuðull skilgreindur út frá hliðarvindi. Meðvindur, vindhviður, skyggni og skýjahæð geta einnig haft hamlandi áhrif á flug og þar sem mælingar á þessum þáttum eru til staðar hafa þeir stundum verið teknir með í forsendur fyrir útreikningum. Takmarkanir vegna þessara þátta geta ráðist af legu flugvalla, lengd flugbrauta o.fl. Þeir flokkar flugvéla sem nota flugvöllinn geta einnig haft áhrif á takmarkanir vegna mismunandi hæfni þeirra t.d. til að ráða við hliðarvind. Isavia ohf. skilgreinir takmarkandi þætti fyrir flugvöll og gefur upplýsingar um flugvöllinn. Veðurmælingar á flugvöllum eru svo nýttar til að meta nothæfisstuðul flugvallar út frá þessum forsendum.
    Nothæfisstuðlar hafa ekki verið reiknaðir fyrir aðra flugvelli á Íslandi en Keflavíkurflugvöll og Reykjavíkurflugvöll. Þar sem ekki er möguleiki á annarri braut á Akureyri, Egilsstöðum og Ísafirði hefur nýtingarhlutfallið ekki verið reiknað til samanburðar við annan kost. Nokkur kostnaður felst í að reikna slíkt hlutfall og hefur það því ekki verið gert.