Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 852, 144. löggjafarþing 214. mál: framhaldsskólar (rafræn námsgögn, gjaldtökuheimild o.fl.).
Lög nr. 5 3. febrúar 2015.
Ákvæði þessarar greinar taka einnig til skólameistara, annarra faglegra stjórnenda og náms- og starfsráðgjafa.
Þingskjal 852, 144. löggjafarþing 214. mál: framhaldsskólar (rafræn námsgögn, gjaldtökuheimild o.fl.).
Lög nr. 5 3. febrúar 2015.
Lög um breytingu á lögum um framhaldsskóla, nr. 92/2008 (rafræn námsgögn o.fl.).
1. gr.
2. mgr. 11. gr. laganna orðast svo:Ákvæði þessarar greinar taka einnig til skólameistara, annarra faglegra stjórnenda og náms- og starfsráðgjafa.
2. gr.
H-liður 1. mgr. 12. gr. laganna orðast svo: að kennsla fari fram í skólahúsnæði sem uppfyllir lög og reglugerðir þar að lútandi.3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 15. gr. laganna:- Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
- Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Námseiningar og starfstími.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 45. gr. laganna:- Í stað orðanna „og efnisgjalds“ í 1. málsl. 1. mgr. og sömu orða í 2. mgr. kemur: efnisgjalds og gjalds fyrir rafrænt námsefni.
- Við 1. mgr. bætist nýr stafliður, svohljóðandi: Heimilt er í tilraunaskyni með sérstöku leyfi ráðherra að innheimta gjald fyrir rafrænt námsefni sem framhaldsskólar ákveða og er veigamikill hluti af námsefni í námsáfanga á skráðri námsbraut viðkomandi nemenda eða í áfanga sem þeir hafa ákveðið að stunda sem valgrein.
5. gr.
Í stað orðsins „endurgjalds“ í 3. málsl. 1. mgr. 47. gr. laganna kemur: kvaða eða gjalda.6. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 21. janúar 2015.