Ferill 525. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 904  —  525. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um einbreiðar brýr.

Frá Haraldi Einarssyni.


     1.      Hvað eru margar einbreiðar brýr á vegum landsins þar sem hámarkshraði er 90 km/klst. og hvar eru þær, skipt eftir kjördæmum annars vegar og hins vegar sveitarfélögum?
     2.      Er til áætlun í ráðuneytinu um að ljúka tvöföldun þessara brúa?
     3.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að fækka einbreiðum brúm og ef svo er, munu merki þess sjást í næstu sam­gönguáætlun?


Skriflegt svar óskast.