Ferill 472. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 911 — 472. mál.
Svar
innanríkisráðherra við fyrirspurn frá Ögmundi Jónassyni
um söfnunarkassa og happdrættisvélar.
Leitað var eftir upplýsingum frá Íslandsspilum sf. og Happdrætti Háskóla Íslands vegna fyrirspurnarinnar. Meðfylgjandi tölur eru byggðar á upplýsingum þaðan.
1. Hverjar voru brúttótekjur Íslandsspila sf. og Happdrættis Háskóla Íslands af söfnunarkössum og happdrættisvélum árin 2011, 2012, 2013 og 2014?
Tekjur, millj. kr.
2011 | 2012 | 2013 | 2014 | |
Brúttótekjur | ||||
HHÍ – happdrættisvélar | 5.563 | 5.489 | 5.515 | 5.085 |
Íslandsspil | 3.817 | 3.943 | 3.852 | 3.916 |
Hreinar happdrættistekjur | ||||
HHÍ – happdrættisvélar | 1.802 | 1.698 | 1.631 | 1.550 |
Íslandsspil | 1.330 | 1.311 | 1.257 | 1.262 |
Brúttótekjur eru innkomið fé af sölu. Hreinar happdrættistekjur eru brúttótekjur að frádregnum vinningum.
Tölur Happdrættis Háskóla Íslands eiga einungis við um umfang og rekstur happdrættisvéla en ekki annan rekstur happdrættisins.
Söfnunarkassar og happdrættisvélar eru í fyrirspurn einnig nefnd spilakassar og spilavélar.
2. Hver voru heildarrekstrargjöld hvors fyrirtækis á þessum árum og hve stór hluti rekstrargjalda rann a) til kaupa, b) til leigu á spilakössum?
Heildarrekstrargjöld, millj. kr.
2011 | 2012 | 2013 | 2014 | |
Heilarrekstrargjöld | ||||
HHÍ – happdrættisvélar | 1.106 | 1.105 | 1.076 | 982 |
Íslandsspil | 530 | 541 | 522 | 479 |
Hluti rekstrargjalda til kaupa og leigu á spilakössum, %.
2011 | 2012 | 2013 | 2014 | |
a) Til kaupa á spilakössum, % af rekstrargjöldum | ||||
HHÍ – happdrættisvélar | 0 | 0 | 0 | 0 |
Íslandsspil | 27,7 | 27,7 | 22,4 | 18,4 |
b) Til leigu á spilakössum, % af rekstrargjöldum | ||||
HHÍ – happdrættisvélar | 33,5 | 36,8 | 37,1 | 35,3 |
Íslandsspil | 0 | 0 | 0 | 0 |
3. Af hvaða aðilum hafa spilakassar, annars vegar Happdrættis Háskóla Íslands og hins vegar Íslandsspila sf., verið keyptir eða leigðir eftir atvikum fyrrgreind ár og hve stór hluti tekna af spilakössum, hlutfallslega og í krónum, rann til rekstraraðila þar sem spilavélarnar eru starfræktar?
Birgjar.
2011 | 2012 | 2013 | 2014 | |
HHÍ – happdrættisvélar |
International Game Technology | International Game Technology | International Game Technology | International Game Technology |
Íslandsspil | Scientific Games, Gtech | Scientific Games, Gtech | Scientific Games, Gtech | Scientific Games, Gtech |
Hluti af hreinum happdrættistekjum til rekstraraðila
þar sem vélar eru starfræktar (umboðslaun), %.
2011 | 2012 | 2013 | 2014 | |
HHÍ – happdrættisvélar | 24,6 | 24,4 | 24,9 | 24,6 |
Íslandsspil | 16,5 | 17,1 | 17,4 | 17,8 |
Fjárhæðir af hreinum happdrættistekjum til rekstraraðila
þar sem vélar eru starfræktar (umboðslaun), millj. kr.
2011 | 2012 | 2013 | 2014 | |
HHÍ – happdrættisvélar | 442 | 415 | 406 | 381 |
Íslandsspil | 220 | 224 | 219 | 224 |
4. Hverjar voru heildarvinningsfjárhæðir hvors fyrirtækis framangreind ár?
Heildarvinningsfjárhæðir,
millj. kr.
2011 | 2012 | 2013 | 2014 | |
HHÍ – happdrættisvélar | 3.761 | 3.791 | 3.884 | 3.535 |
Íslandsspil | 2.487 | 2.632 | 2.595 | 2.654 |
5. Hverjar voru tekjur hvors fyrirtækis að frádregnum vinningum og kostnaði sömu ár?
Tekjur að frádregnum vinningum og kostnaði
1
, millj. kr.
2011 | 2012 | 2013 | 2014 | |
HHÍ – happdrættisvélar | 709 | 628 | 603 | 595 |
Íslandsspil | 802 | 772 | 736 | 780 |
- Neðanmálsgrein: 1
- 1 Fjárhæð sem er til ráðstöfunar til þeirra verkefna sem fyrirtækin fjármagna.