Ferill 548. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 936  —  548. mál.




Fyrirspurn


til innanríkisráðherra um flutning verkefna til sýslumanna.

Frá Guðbjarti Hannessyni.


     1.      Hvenær er áætlað að fyrir liggi aðgerðaáætlun um flutning verkefna til embætta sýslumanna sem mælt er fyrir um í ákvæði til bráðabirgða III í lögum nr. 50/2014, um framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði?
     2.      Hvaða verkefni er helst fyrirséð að talið verði ákjósanlegt að flytja til embætta sýslumanna?