Ferill 566. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 981  —  566. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um Norðfjarðarflugvöll.

Frá Kristjáni L. Möller.


     1.      Hver er stefna ráðherra varðandi uppbyggingu Norðfjarðarflugvallar?
     2.      Hvað þarf að gera til þess að völlurinn uppfylli skilyrði og verði nothæfur til sjúkraflugs allt árið?
     3.      Hvenær er áætlað að framkvæmdir geti hafist við flugvöllinn?