Ferill 584. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1016  —  584. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um uppbyggingu lögreglunáms.

Frá Katrínu Jakobsdóttur.


     1.      Hver er afstaða ráðherra til tillagna starfshóps um fyrirkomulag lögreglunáms?
     2.      Hvenær á ráðherra von á því að sá hópur sem skipaður var í janúar 2015 til að útfæra nánar tillögur um fyrirkomulag lögreglunáms ljúki störfum?
     3.      Hvað veldur því að ekki er efnt til þverpólitísks samráðs um þetta mál í ljósi þeirrar ákvörðunar ráðherra að skipa þingmenn í þennan hóp?