Ferill 587. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1019  —  587. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um vistun fanga í öryggisfangelsum og opnum fangelsum.

Frá Helga Hrafni Gunnarssyni.


     1.      Hversu margir fangar, hlutfallslega, eru vistaðir annars vegar í öryggisfangelsum og hins vegar í opnum fangelsum hér á landi?
     2.      Hvert er þetta hlutfall í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi?


Skriflegt svar óskast.