Ferill 619. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1071  —  619. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um ómskoðunartæki á heilbrigðisstofnunum.

Frá Silju Dögg Gunnarsdóttur.


     1.      Á hvaða starfsstöðvum heilbrigðisstofnana eru ómskoðunartæki til staðar?
     2.      Hvar eru þau í notkun?
     3.      Ef einhver ómskoðunartæki eru ekki í notkun, hverjar eru þá ástæður þess?
     4.      Hyggst ráðherra bæta úr þessari stöðu og ef svo er, í hverju felst sú áætlun?


Skriflegt svar óskast.