Ferill 668. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1136 — 668. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um endurskoðun á skilyrðum gjafsóknar.
Flm.: Elsa Lára Arnardóttir, Páll Jóhann Pálsson, Willum Þór Þórsson,
Þorsteinn Sæmundsson, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Jón Þór Ólafsson,
Páll Valur Björnsson, Brynhildur Pétursdóttir.
Alþingi ályktar að fela innanríkisráðherra að endurskoða skilyrði gjafsóknar, þ.m.t. tekjumörk umsækjenda. Ráðherra setji reglugerð á grundvelli endurskoðunarinnar eigi síðar en 1. september 2015.
Greinargerð.
Enn í dag, rúmum sex árum eftir efnahagshrunið haustið 2008, er stór hópur einstaklinga sem situr uppi með gengistryggð lán sem innihalda ólögmæta gengistryggingu sem stökkbreyttust í hruninu. Um er að ræða lánasamninga hjá fjármála- og fjármögnunarfyrirtækjum. Margir þessara einstaklinga hafa ekki fengið ólögmæt lán sín leiðrétt eins og eðlilegt er þrátt fyrir að lán þar sem gengistrygging hefur verið byggð á sams konar skilmálum hafi verið dæmd ólögmæt í héraðsdómi og Hæstarétti. Eina leið þessara einstaklinga til að sækja rétt sinn til viðsemjenda sinna er því að höfða mál fyrir dómstólum þar sem ekki er vilji hjá fyrirtækjunum til að endurreikna þau lán sem innihalda ólögmæta gengistryggingu. Það reynist mörgum erfitt að höfða mál fyrir dómi, um er að ræða flókið og langt ferli sem tekið getur á og verið kostnaðarsamt. Margir sækja ekki rétt sinn sökum þessa.
Samkvæmt 1. mgr. 7. gr. reglugerðar um skilyrði gjafsóknar og starfshætti gjafsóknarnefndar, nr. 45/2008, skal miða við að einstaklingur hafi ekki hærri heildartekjur en 2 millj. kr. á ári við mat á því hvort gjafsókn verði veitt vegna efnahags umsækjanda. Sé einstaklingur í sambúð eða í hjúskap ber að hafa hliðsjón af tekjum maka og skulu samanlagðar árstekjur þeirra ekki nema hærri fjárhæð en 3 millj. kr. á ári í heildarlaun. Þegar umsækjandi er yngri en 18 ára skal höfð hliðsjón af samanlögðum tekjum foreldra og hækka skal viðmiðunarmörk tekna um 250 þús. kr. fyrir hvert barn undir 18 ára aldri, þ.m.t. stjúp- og fósturbörn, sem búa hjá umsækjanda eða hann framfærir að mestum hluta.
Tekjumörkin sem miðað er við eru því afar lág. Þau eru raunar svo lág að umsækjandi sem býr einn þarf að hafa tekjur undir lágmarkslaunum og sé hann í hjúskap og samanlagðar tekjur umsækjanda og maka undir 3 millj. kr. á ári, þá þurfa tekjur hvors um sig að vera töluvert langt undir lágmarkslaunum. Þá eru þessi tekjuviðmið langt undir neysluviðmiðum velferðarráðuneytisins en samkvæmt þeim er framfærslukostnaður einstaklings sem býr einn ríflega 234 þús. kr. á mánuði án húsnæðiskostnaðar. Tekjuviðmiðum reglugerðarinnar var síðast breytt í desember 2010, með reglugerð nr. 1059/2010, þegar þau voru hækkuð í annars vegar 2 millj. kr. og hins vegar 3 millj. kr. í heildarlaun og má telja að það hafi einnig á þeim tíma verið mjög lág viðmið. Frá þeim tíma hefur hins vegar vísitala neysluverðs hækkað um rúm 15% en tekjuviðmið reglugerðarinnar staðið í stað. Að mati flutningsmanna er ljóst að taka þarf þessi viðmið til endurskoðunar ef gjafsókn á að vera raunhæft úrræði fyrir tekjulága einstaklinga.
Flutningsmenn þessarar tillögu telja mikilvægt að einstaklingar geti allir sótt rétt sinn til dómstóla ef svo ber undir óháð efnahag og stöðu. Ljóst er að aðstöðumunur er mjög mikill milli einstaklinga og fjármálafyrirtækja og því brýnt nú, svo löngu eftir hrunið sem raun ber vitni, að eftirmál þess verði leyst á farsælan hátt og þannig að enginn þurfi að glata rétti sem hann kann að eiga vegna þess eins að viðkomandi er í bágri fjárhagsstöðu en ekki svo bágri þó að uppfylla skilyrði áðurnefndrar reglugerðar. Verði tekjuviðmiðum reglugerðarinnar ekki breytt er hætt við því að margir einstaklingar og fjölskyldur muni ekki geta sótt rétt sinn fyrir dómi og fái þannig ekki leiðréttingu á ólögmætum gengistryggðum lánum.