Ferill 709. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1192 — 709. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og menningarmálaráðherra um íþróttakennslu í framhaldsskólum.
Frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur.
1. Eru fagleg rök fyrir því að draga úr íþróttakennslu í framhaldsskólum og ef svo er, hver eru þau?
2. Telur ráðherra samdrátt í íþróttakennslu í framhaldsskólum samræmast annars vegar verkefninu „Heilsueflandi framhaldsskóli“ og hins vegar lýðheilsumarkmiðum ríkisstjórnarinnar?