Ferill 479. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1220  —  479. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um tillögu til þingsályktunar um samstarf við Færeyjar og Grænland
um leiðir til að draga úr útblæstri brennisteins frá skipum.

Frá utanríkismálanefnd.

    
    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Unni Brá Konráðsdóttur, formann Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins, Ingu Dóru Markussen, framkvæmdastjóra Vestnorræna ráðsins, Helgu Barðadóttur frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti og Kjartan Ingvarsson frá um­hverfis- og auðlindaráðuneyti.
    Með tillögunni er lagt til að Alþingi skori á ríkisstjórnina að efna til samstarfs við stjórnvöld Færeyja og Grænlands um leiðir til að draga úr útblæstri brennisteins frá skipum í þeim tilfellum þar sem mengunina má rekja til notkunar svartolíu. Því verði beint til landanna að þróa og koma í framkvæmd áætlunum fyrir skilvirka og um­hverfisvæna orkunotkun með því að krefjast þess að notað sé eldsneyti sem mengar minna og tækjabúnaður sem fjarlægir brennisteinsagnir úr eldsneyti skipa.
    Tillagan byggist á ályktun nr. 2/2014 sem samþykkt var á ársfundi Vestnorræna ráðsins 3. september 2014 í Vestmannaeyjum en þar er áskorun þessa efnis beint til ríkisstjórnar Íslands og landsstjórna Færeyja og Grænlands.
    Í greinargerð með tillögunni koma ekki fram upplýsingar um hvaða reglur gilda um losun brennisteins frá skipum í vestnorrænu löndunum. Við umfjöllun nefndarinnar kom fram að tilskipanir Evrópusambandsins um leyfilegt innihald brennisteins í skipaolíu gilda á EES- svæðinu. Þær tilskipanir hafa verið innleiddar á Norðurlöndunum og var innleiðingu á síðustu tilskipun um þetta efni nýlega lokið hérlendis, sbr. reglugerð nr. 124/2015, um brennisteinsinnihald í tilteknu ­fljótandi eldsneyti. Í reglugerðinni er kveðið á um að brennisteinsinnihald í skipaeldsneyti, þ.m.t. svartolíu sem er notuð eða er ætluð til nota í skipum eða bátum, sem notað er hér á landi og í mengunarlögsögu Íslands skuli vera að hámarki 2,0% (m/m), að undanskildu eldsneyti til skipa sem nota viðurkenndar aðferðir til að draga úr losun í lokuðu kerfi. Stefnumótun íslenskra stjórnvalda liggur skýrt fyrir í þessum málaflokki og hefur viðmiðið um 2% hámark brennisteinsinnihalds í skipaeldsneyti verið í gildi frá 2007. Fram kom í máli gesta að hvetja mætti færeysk og grænlensk stjórnvöld til að setja sambærilegar reglur um takmörkun brennisteinsinnihalds í skipaeldsneyti. Enn fremur væri mikilvægt að hvetja Grænlendinga og Færeyinga til aukinnar þátttöku í norrænum verkefnum á sviði mengunarvarna, m.a. Marina-verkefninu um minni útblástur og notkun vistvænnar orku á sjó sem ýtt var úr vör í febrúar 2014.
    Nefndin telur eðlilegt að ríkisstjórn Íslands deili upplýsingum um hérlenda stefnumótun og aðgerðir til að draga úr brennisteinsútblæstri með landsstjórnum Færeyja og Grænlands og eigi við þær samstarf á þessu sviði.
    Nefndin gerir tillögu um eina orðalagsbreytingu fyrir skýrleika sakir og leggur til að tillagan verði samþykkt með svohljóðandi


BREYTINGU:


    Í stað orðsins „sjósiglingar“ í lok tillögugreinarinnar komi: fraktflutninga.

    Silja Dögg Gunnarsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 22. apríl 2015.

Birgir Ármannsson,
form.
Vilhjálmur Bjarnason,
frsm.
Ásmundur Einar Daðason.
Elín Hirst. Frosti Sigurjónsson. Katrín Jakobsdóttir.
Óttarr Proppé. Össur Skarphéðinsson,
með fyrirvara.