Ferill 305. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Prentað upp.
Þingskjal 1227 — 305. mál.
Viðbót.
3. umræða.
Breytingartillaga
við frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum, nr. 65/2003,
með síðari breytingum (kerfisáætlun).
Frá minni hluta atvinnuveganefndar (LRM).
Við 2. gr.
a. Í stað orðanna „raforkunotkunar, markaðsþróunar og raforkuflutnings til annarra landa eftir því sem við á“ í 3. mgr. a-liðar (9. gr. a) komi: raforkunotkunar og markaðsþróunar.
b. Við b-lið (9. gr. b) bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Ákvörðun Orkustofnunar um samþykkt eða synjun kerfisáætlunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.