Ferill 730. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Prentað upp.

Þingskjal 1242  —  730. mál.
Skriflegt svar.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um innheimtu dómsekta.

Frá Brynhildi Pétursdóttur.


     1.      Tekur ráðherra undir sjónarmið í skýrslu Ríkisendurskoðunar frá október 2012, Skýrsla um eftirfylgni: Eftirlit með innheimtu sekta og sakarkostnaðar (2009), um að bæta þurfi núverandi kerfi við innheimtu dómsekta?
     2.      Hvernig hyggst ráðherra fylgja eftir þeim ábendingum sem koma fram í skýrslunni?
     3.      Hvað líður heildarendurskoðun laga um fullnustu refsinga, nr. 49/2005?
     4.      Telur ráðherra eðlilegt að hægt sé að fullnusta fésektir vegna skattalagabrota með samfélagsþjónustu?


Skriflegt svar óskast.