Ferill 737. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1256  —  737. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um lendingar flugvéla
á Keflavíkurflugvelli og varaflugvöllum.

Frá Helga Hrafni Gunnarssyni.


1.      Hversu margar flugvélar lentu á Keflavíkurflugvelli á árunum 1995–2015, sundurliðað eftir árum?
2.      Hversu margar flugvélar sem áttu að lenda á Keflavíkurflugvelli neyddust árlega á sama tímabili til að lenda á eftirtöldum varaflugvöllum:
                  a.      Reykjavíkurflugvelli,
                  b.      Akureyrarflugvelli,
                  c.      Egilsstaðaflugvelli?


Skriflegt svar óskast.