Ferill 609. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1266 — 609. mál.
Síðari umræða.
Nefndarálit
um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu samnings milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2015.
Frá utanríkismálanefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Birgi Hrafn Búason og Kristján Andra Stefánsson frá utanríkisráðuneyti.
Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á samningi milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2015 sem gengið var frá með bréfaskiptum í Þórshöfn og Reykjavík 6. og 20. janúar 2015. Samningurinn kveður á um heimildir aðila til veiða á uppsjávarfiski í lögsögu hvors annars á árinu 2015.
Samningurinn er óbreyttur frá fyrri árum að öðru leyti en því að ekki var kveðið á um heimildir færeyskra skipa til loðnuveiða í íslenskri lögsögu í samningnum frá árinu 2014 og hefur því ákvæði 1. gr. þessa samnings að geyma heimildir fyrir loðnuveiðar Færeyinga í íslenskri lögsögu fyrir vertíðina 2014/2015, sem og vertíðina 2015/2016. Við umfjöllun nefndarinnar kom fram að heildarmagnið væri það sama og ef hefðbundnar heimildir hefðu verið veittar í fyrra, en þá var ákveðið að geyma slíka ákvörðun vegna óvissu af vaxandi umhverfisbreytingum sem hafa ekki leitt til breytinga á skiptingu hlutdeildar.
Fram kemur í athugasemdum við tillöguna að samningurinn gerir ráð fyrir gagnkvæmri heimild skipa hvors aðila til veiða á kolmunna og norsk-íslenskri síld innan lögsögu hins á árinu 2015. Þá eru íslenskum skipum heimilar veiðar á allt að 1.300 lestum af makríl og 2.000 lestum af síld annarri en norsk-íslenskri innan færeyskrar lögsögu á árinu 2015.
Áður en samningur þessi var gerður var á grundvelli samnings landanna frá 1976 um heimildir Færeyinga til veiða í lögsögu Íslands ákveðið að færeyskum skipum væri heimilt að veiða 5.600 lestir af botnfiski við Ísland á árinu 2015. Heildarafli þorsks verður þó ekki meiri en 1.375 lestir, heildarafli keilu ekki meiri en 750 lestir og engar veiðar eru heimilaðar á lúðu eða grálúðu.
Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.
Alþingi, 5. maí 2015.
Birgir Ármannsson, form. |
Silja Dögg Gunnarsdóttir, frsm. |
Ásmundur Einar Daðason. |
Vilhjálmur Bjarnason. | Elín Hirst. | Frosti Sigurjónsson. |
Katrín Jakobsdóttir. | Óttarr Proppé. | Össur Skarphéðinsson. |