Ferill 734. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1300 — 734. mál.
Svar
iðnaðar- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn frá Birgittu Jónsdóttur
um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða.
1. Hversu margir styrkir hafa verið veittir úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða, sundurliðað eftir styrkþegum og fjárhæðum styrkja?
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða hefur úthlutað alls 344 styrkjum frá fyrstu úthlutun 2012 til 2015 en lög um sjóðinn, sbr. lög nr. 75/2011, tóku gildi í júní 2011. Heildarfjárhæð styrkjanna er 1.444.904.153 kr. Eftirfarandi tafla sýnir fjölda styrkja sundurliðað eftir styrkþegum og fjárhæð styrkja eftir árum. Í töflunni eru einnig upplýsingar um þau verkefni sem hafa fengið styrk oftar en einu sinni með vísan til 3. tölul. fyrirspurnarinnar. Á vef Ferðamálastofu má finna nánari lista með rökstuðningi um verkefni hverrar úthlutunar:
www.ferdamalastofa.is/is/umhverfis-og-gaedi/framkvaemdasjodur-ferdamannastada.
Styrk- númer | Styrkþegi | Verkefni | Upphæð styrks, kr. |
Styrkt aftur |
Úthlutanir 2012 | ||||
12-001 | Akureyrarstofa | Heimskautsbaugurinn – Grímsey | 250.000 | |
12-002 | Breiðdalshreppur | Aðgengi að Flögufoss í Breiðdal | 1.500.000 | |
12-003 | Ferðamálasamtök Suðurnesja | Hundrað gíga garðurinn | 1.500.000 | |
12-004 | Fjarðabyggð | Skipulag og hönnun áningarstaðar við Söxu Stöðvarfirði | 1.000.000 | |
12-005 | Fljótsdalshreppur | Hengifoss, skipulag, hönnun og framtíðarsýn | 2.000.000 | |
12-006 | Fornleifavernd ríkisins | Stöng í Þjórsárdal, ásýnd og umhverfi, hönnunarsamkeppni | 4.900.000 | |
12-007 | Framfarafélag Flateyjar | Bætt aðstaða ferðamanna í Flatey | 2.000.000 | |
12-008 | Gunnarsstofnun | Skriðuklaustur – Skipulags- og hönnunarvinna | 500.000 | |
12-009 | Hveravallafélagið ehf. | Hveravellir – Virkjun borhola og veituframkvæmdir/hönnun | 5.000.000 | 2. styrkur |
12-010 | Langanesbyggð | Skoruvíkurbjarg, bætt aðgengi | 1.050.000 | |
12-011 | Mýrdalshreppur | Dyrhólaey, uppbygging | 5.000.000 | |
12-012 | Ósafell ehf. | Stefnumót við Vatnsnes | 4.500.000 | |
12-013 | Rangárþing eystra | Útsýnispallur við Skógarfoss | 5.000.000 | |
12-014 | Rangárþing eystra | Gönguleiðin yfir Fimmvörðuháls | 1.000.000 | |
12-015 | Rangárþing ytra | Fjallabak – Hálendissvæði vestan og norðan Mýrdalsjökuls | 5.000.000 | |
12-016 | Sjávarþorpið Suðureyri ehf. | Bætt aðgengi að lóninu á Suðureyri | 1.500.000 | |
12-017 | Skaftárhreppur | Fjaðurárgljúfur – Bætt aðgengi og öryggi fyrir ferðamenn | 1.800.000 | |
12-018 | Skaftárhreppur | Eldhraun – Deiliskipulag fyrir nýjan áningarstað | 300.000 | |
12-019 | Skaftárhreppur | Fagrifoss, bætt aðgengi og aukið öryggi fyrir ferðamenn | 300.000 | |
12-020 | Skaftárhreppur | Dverghamrar, bætt aðstaða fyrir ferðamenn | 300.000 | |
12-021 | Skógrækt ríkisins | Þjónustuhús í Þjóðskógunum | 2.400.000 | |
12-022 | Skrifstofa ferða- og menningarmála | Göngubrýr út í Skálanes, Seyðisfirði | 1.500.000 | |
12-023 | Snorrastofa í Reykholti | Umhverfi menningarminja í Reykholti | 3.000.000 | |
12-024 | Stykkishólmsbær | Súgandisey í Stykkishólmi | 2.000.000 | |
12-025 | Sveitarfélagið Ölfuss | Reykjadalur 2012 | 3.000.000 | |
12-026 | Umhverfisstofnun | Gullfoss | 5.000.000 | |
12-027 | Umhverfisstofnun og Landgræðslan | Dimmuborgir | 1.450.000 | |
12-028 | Vestmannaeyjabær | Lundaskoðun í Stórhöfða – Aðgengi | 950.000 | |
12-029 | Vinir Þórsmerkur | Deiliskipulag ferðamannastaða í Þórsmörk og viðhald gönguleiða | 2.800.000 | |
12-030 | Þrísker ehf. | Frystihúsið í Flatey á Breiðafirði | 2.500.000 | |
Samtals | 69.000.000 | |||
Úthlutanir 2013 | ||||
13-001 | Byggðasafn Skagfirðinga | Glaumbær í Skagafirði – Skipulag og hönnun safnsvæðis | 2.550.000 | |
13-002 | Dalvíkurbyggð | Umhverfi og útivist í Dalvíkurbyggð | 500.000 | |
13-003 | Ferðamálasamtök Suðurnesja | Þjónustuhús við Valahnúk Reykjanesi | 1.500.000 | |
13-004 | Ferðaþjónustan Reykjanes | Reykjanes – Vatnavinir Vestfjarða | 2.500.000 | |
13-005 | Fjarðabyggð | Hólmanes, friðland og fólkvangur milli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar | 5.000.000 | |
13-006 | Fornleifavernd ríkisins (Minjastofnun Íslands) | Stöng í Þjórsárdal, ásýnd og umhverfi | 20.000.000 | 2. styrkur |
13-007 | Framkvæmdasjóður Skrúðs | Þjónustuhús við Skrúð í Dýrafirði | 5.000.000 | |
13-008 | Grindavíkurbær | Húshólmi í Ögmundarhrauni – Bætt aðgengi að minjum | 1.500.000 | |
13-009 | Gunnarsstofnun | Skriðuklaustur – Aðgengi fyrir alla | 1.100.000 | 2. styrkur |
13-010 | Hafnarfjarðarbær | Seltún – Öllum til sóma | 1.000.000 | |
13-011 | Hrunamannahreppur | Aðgengi að Gullfossi austanmegin | 700.000 | |
13-012 | Hveravallafélagið ehf. | Deiliskipulag Hveravalla, virkjun borhola og veituframkvæmdir | 10.000.000 | |
13-013 | Ísafjarðarbær | Göngustígakerfi Ísafjarðarbæjar – Hönnun og skipulag | 750.000 | |
13-014 | Kötlusetur ses | Dyrhólaey | 900.000 | |
13-015 | Kötlusetur ses | Hjörleifshöfði | 550.000 | |
13-016 | Kötlusetur ses | Sólheimajökull | 3.000.000 | |
13-017 | Kötlusetur ses | Víkurfjara | 1.900.000 | |
13-018 | Landeigendur Reykjahlíðar ehf. | Göngupallar/stígar á Hverarönd austan við Námaskarð | 1.500.000 | |
13-019 | Langanesbyggð | Upplýsingareitur á Þórshöfn | 1.120.000 | |
13-020 | Rangárþing eystra | Aðgengi að Gluggafossi | 700.000 | |
13-021 | Rangárþing eystra | Skipulag og uppbygging stíga við Skógarfoss | 1.350.000 | 2. styrkur |
13-022 | Rangárþing eystra | Skipulagsgerð og framkvæmdir við Hamragarða og nærumhverfi | 3.000.000 | |
13-023 | Rangárþing ytra | Rammaskipulag Fjallabaks | 3.000.000 | 2. styrkur |
13-024 | Rangárþing ytra | Deiliskipulag Landmannalauga – Undirbúningur undir samkeppni | 3.000.000 | |
13-025 | Reykjavíkurborg – Viðey | Bætt aðgengi fatlaðs fólks í Viðey | 1.500.000 | |
13-026 | Sandgerðisbær | Aðgengi að Stafnesvita | 1.000.000 | |
13-027 | Sandgerðisbær | Gönguleiðir kringum Sandgerðistjörn | 2.000.000 | |
13-028 | Seyðisfjarðarkaupstaður | Landamærahöfnin á Seyðisfirði – Markaðstorg og almenningsgarður | 4.000.000 | |
13-029 | Síldarminjasafn Íslands ses | Síldarminjasafnið á Siglufirði – Fegrun umhverfis og bætt aðgengi | 1.100.000 | |
13-030 | Skaftárhreppur | Fjarðárgljúfur – Uppbygging innviða | 5.000.000 | 2. styrkur |
13-031 | Skógrækt ríkisins | Þjónustuhús í Þjóðskógunum – Laugarvatn | 7.500.000 | 2. styrkur |
13-032 | Snæfellsbær | Útivistarstígur og áningarstaðir milli Rifs og Ólafsvíkur | 1.175.000 | |
13-033 | Stykkishólmsbær | Súgandisey | 5.700.000 | 2. styrkur |
13-034 | Bláskógabyggð | Geysir í Haukadal – Hugmynda- samkeppni og deiliskipulagsvinna | 20.000.000 | |
13-035 | Sveitarfélagið Hornafjörður | Jöklaleiðin – Göngubrú og stígar við Fláajökul | 7.300.000 | |
13-036 | Sveitarfélagið Hornafjörður | Jöklaleiðin – Göngustígar og umhverfisbætur vestan Jökulsárlóns | 3.600.000 | 2. styrkur |
13-037 | Sveitarfélagið Ölfuss | Reykjadalur 2013 | 5.000.000 | 2. styrkur |
13-038 | Umhverfisstofnun | Deiliskipulag fyrir Gullfoss | 1.800.000 | 2. styrkur |
13-039 | Umhverfisstofnun | Deiliskipulag og framkvæmdir við Hverfjall (Hverfell) í Mývatnssveit | 1.500.000 | 2. styrkur |
13-040 | Umhverfisstofnun | Hugmyndasamkeppni fyrir Skútu- staðagíga (hönnun og skipulag) | 3.650.000 | |
13-041 | Vestmannaeyjabær | Fyrir og eftir gos – Merkingar | 600.000 | |
13-042 | Vesturbyggð og Umhverfisstofnun | Fullnaðarhönnun við áningarstaði á Bjargtanga | 1.500.000 | |
13-043 | Vinir Þórsmerkur | Viðhald gönguleiða á Þórsmerkursvæðinu | 1.000.000 | 2. styrkur |
13-044 | Þrísker ehf. | Frystihúsið í Flatey á Breiðafirði | 3.700.000 | 2. styrkur |
13-101 | Umhverfisstofnun | Þjónustumiðstöð Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls á Hellissandi | 75.000.000 | Hætt við |
13-102 | Vatnajökulsþjóðgarður | Þjónustumiðstöð við Dettifoss að vestan, 1. áfangi | 37.500.000 | |
13-103 | Vatnajökulsþjóðgarður | Eldgjá á Fjallabaksleið – Bætt aðgengi og öryggi ferðamanna | 14.250.000 | |
13-104 | Þingvallanefnd | Hakið – Frágangur á hlaði og upplýsingaskilti ofan Almannagjár | 12.500.000 | |
13-105 | Þingvallanefnd | Hakið – Tenging á palli við rampa í Almannagjá | 7.500.000 | 2. styrkur |
13-201 | Akraneskaupstaður | Breiðin á Akranesi | 3.400.000 | |
13-202 | Akraneskaupstaður | Útivistarperlan Langisandur á Akranesi | 2.000.000 | |
13-203 | Akureyrarkaupstaður | Krossanesborgir – Fólkvangur, merkingar og stígagerð | 2.200.000 | |
13-204 | Akureyrarstofa/Akureyrarbæ | Kennileiti fyrir heimskautsbauginn í Grímsey | 2.236.450 | 2. styrkur |
13-205 | Veiðifélag Skaftártungu- manna (Almenna verkfræði- stofan) | Hólaskjól við Skaftá | 1.500.000 | |
13-206 | Arkitektar Hjördís & Dennis ehf. | Vistvænir fjallaskálar í Ríki Vatnajökuls | 1.800.000 | |
13-207 | Borgarbyggð | Sögubærinn Borgarnes | 5.000.000 | |
13-208 | Bókmenntaborg UNESCO | Menningarmerkingar í miðborg | 1.420.000 | |
13-209 | Dalabyggð | Áfangastaðir í Dalabyggð | 1.500.000 | |
13-210 | Eyjafjarðarsveit | Merking og stikun gönguleiða í Eyjafjarðarsveit | 1.250.000 | 2. styrkur |
13-211 | Fannborg ehf. | Siturlögn við fráveitukerfi í Kerlingarfjöllum | 1.111.320 | |
13-212 | Fannborg ehf. | Vatnslögn Kerlingarfjöllum | 1.374.750 | 2. styrkur |
13-213 | Ferðafélagið Útivist | Salernisaðstaða við Strútslaug – Deiliskipulag | 1.000.000 | |
13-214 | Ferðamálahópur Borgarfjarðar eystri | Bættar merkingar á Víknaslóðum við Borgarfjörð eystri | 500.000 | 2. styrkur |
13-215 | Félag áhugamanna um víkingaverkefni á söguslóð- um Gísla sögu Súrssonar | Hátíðar- og útivistarsvæði Þingeyrarodda | 1.114.253 | |
13-216 | Félag Látramanna | Bryggjusmíði á Látrum í Aðalvík | 755.000 | |
13-217 | Félag um Dalbæ | Dalbær á Snæfjallaströnd | 1.500.000 | |
13-218 | Félag um listasafn Samúels | Hús Samúels í Selárdal | 2.000.000 | |
13-219 | Fjarðabyggð | Helgustaðanáma við Reyðarfjörð | 10.000.000 | |
13-220 | Fljótsdalshérað | Stórurð – Hönnun og skipulag víðernis | 5.000.000 | |
13-221 | Fræðafélag um forystufé | Upplýsingapallur í Þistilfirði | 1.400.000 | |
13-222 | Gásakaupstaður | Gásir við Eyjafjörð | 6.850.000 | |
13-223 | Grettistak ses | Grettisból á Laugarbakka – Skipulag og hönnun | 2.000.000 | |
13-224 | Grindavíkurbær | Selatangar í Grindavík – Skipulag og hönnun | 750.000 | |
13-225 | Highland Hostel ehf. | Göngugátt að hálendi Austurlands | 4.481.143 | |
13-226 | HS Veitur hf. | Að virkja óvininn – Vestmannaeyjum | 2.000.000 | |
13-227 | Hvalfjarðarsveit | Stefnumótun og skipulag í Botnsdal í Hvalfjarðarsveit | 2.000.000 | |
13-228 | Kötlusetur ses | DC-3 á Sólheimasandi | 1.400.000 | |
13-229 | Kötlusetur ses | Reynisfjara | 2.700.000 | |
13-230 | Landvernd | Skiltagerð á háhitasvæðum í Kerlingarfjöllum og Vatnajökulsþjóðgarði | 1.160.000 | |
13-231 | Langanesbyggð | Skoruvíkurbjarg – Bætt aðgengi að Stóra-Karli | 8.250.000 | 2. styrkur |
13-232 | Lionsklúbbur Stykkishólms | Fræðsluskilti í og við Stykkishólm | 500.000 | |
13-233 | Minjastofnun Íslands | Surtshellir – Frumhönnun til verndunar minja | 1.300.000 | |
13-234 | Minjavörður Suðurlands og ferðamálafulltrúi Árnessýslu | Vígðalaug við Laugarvatn | 4.000.000 | |
13-235 | Norðurhjari, ferðaþjónustuklasi | Áfangastaðir á starfssvæði Norðurhjara | 3.107.500 | |
13-236 | Norðurþing | Raufarhöfn – Áfangastaður ferðamanna allt árið | 25.000.000 | |
13-237 | Ósafell ehf. | Stefnumót við Vatnsnes – Lokafrágangur og merkingar | 2.162.090 | 2. styrkur |
13-238 | Ósafell ehf., í samstarfi við Húnaþing vestra o.fl. | Hvítserkur – Heildarmynd og umhverfisskipulag | 547.494 | 3. styrkur |
13-239 | Penna ehf. | Hellulaug við Flókalund í Vatnsfirði | 1.600.000 | |
13-240 | Potemkin ehf. | Gvendarlaug – Klúka – Vatnavinir Vestfjarða | 2.000.000 | |
13-241 | Rangárþing eystra | Gönguleiðin yfir Fimmvörðuháls | 1.300.000 | 2. styrkur |
13-242 | Rangárþing eystra | Þórsmerkursvæðið, deiliskipulag | 3.500.000 | |
13-243 | Rangárþing eystra | Bætt aðgengi og aðstaða á áhugaverðum stöðum í Rangárþingi eystra/Kötlu jarðvangi | 4.800.000 | |
13-244 | Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins | Gerð göngustíga í Esjuhlíðum ofan Mógilsár | 1.810.000 | |
13-245 | Sandgerðisbær | Ferðamannavegur á Rosmhvalanesi | 1.500.000 | |
13-246 | Síldarminjasafn Íslands ses | Fegrun umhverfis og bætt aðgengi að Síldarminjasafninu á Siglufirði II | 1.000.000 | |
13-247 | Sjóræningjahúsið | Annar áfangi útisvæðis við Sjóræningjahúsið, Patreksfirði | 630.000 | |
13-248 | Skálanessetur ehf. | Skálanes, lagfæring gönguleiðar | 800.000 | |
13-249 | Skógræktarfélag Íslands | Opinn skógur að Skógum undir Eyjafjöllum | 2.000.000 | |
13-250 | Skútusiglingar ehf. | Salernisaðstaða á Kvíum í Jökulfjörðum | 382.000 | |
13-251 | Snorrastofa í Reykholti | Umhverfi og útiminjar í Reykholti, Borgarfirði | 13.000.000 | |
13-252 | Snæfellsbær | Bjarnarfoss í Staðarsveit – Skipulag og hönnun áningarstaðar | 450.000 | |
13-253 | Snæfellsbær | Áningarstaður við Rif, Snæfellsbæ | 13.299.000 | |
13-254 | Snæfellsbær | Strandupplifun og sjóböð í Snæfellsbæ | 1.000.000 | |
13-255 | Snæfellsbær | Útivistarstígur milli Rifs og Ólafsvíkur | 25.000.000 | |
13-256 | Sólrún Þorsteinsdóttir | Upplýsingavarða um byggðina að Látrum og herstöðina á Straumnesfjalli | 950.000 | |
13-257 | Sveitarfélagið Árborg | Endurbygging Þuríðarbúðar, Stokkseyri | 1.175.000 | |
13-258 | Sveitarfélagið Árborg | Krían við Eyrarbakka – Umhverfishönnun og skipulag | 1.150.000 | |
13-259 | Sveitarfélagið Árborg | Skipulag og hönnun við Húsið á Eyrarbakka og Eyrarbakkakirkju | 3.150.000 | |
13-260 | Sveitarfélagið Garður | Söguslóð, Garðskagi – Útskálar | 7.000.000 | |
13-261 | Sveitarfélagið Hornafjörður | Gamlabúð á Höfn – Endurnýjun, gestastofa VJÞ, upplýsingamiðstöð ferðamanna | 6.500.000 | |
13-262 | Sveitarfélagið Skagafjörður | Bæjarfjöllin í Skagafirði – Upplýsinga- og fræðsluskilti | 1.025.200 | |
13-263 | Umhverfisstofnun og Landgræðsla ríkisins | Dimmuborgir – Lagfæring stígs að Hallarflöt | 1.200.000 | 3. styrkur |
13-264 | Umhverfisstofnun og Landgræðsla ríkisins | Dimmuborgir – Snjóbræðslukerfi í göngustíga | 1.000.000 | 2. styrkur |
13-265 | Umhverfisstofnun | Innri Hesteyrarbrúnir | 900.000 | |
13-266 | Undurbúningsfélag fyrir Saga jarðvang | Skipulag og hönnun ferðamanna- staða í uppsveitum Borgarfjarðar | 1.265.000 | |
13-267 | Útgerðarminjasafnið á Grenivík ses | Hönnun umhverfis Útgerðarminjasafnsins á Grenivík | 300.000 | |
13-268 | Vatnajökulsþjóðgarður | Gönguleiðir í Skaftafelli | 3.000.000 | |
13-269 | Vestmannaeyjabær | Aðkoma og frágangur í Eldheim- um/Pompei norðursins í Vestmannaeyjum | 7.000.000 | |
13-270 | Vestmannaeyjabær | „Panorama“ gangstígur eftir Hamrinum í Vestmannaeyjum | 6.000.000 | |
13-271 | Viðey – Reykjavík (Reykjavíkurborg) | Viðey – Móttaka og aðgengi ferðamanna | 5.000.000 | |
13-272 | Vinir Þórsmerkur | Göngubrú yfir Markarfljót við Húsadal, 3. áfangi, framkvæmdir | 30.000.000 | 3. styrkur |
13-273 | Víkingaheimar | Aðkoman að Víkingaheimum | 5.000.000 | |
13-274 | Þingeyjarsveit | Endurbætur á umhverfi Goðafoss | 5.000.000 | |
13-275 | Þróunarfélag Snæfellinga | Helgafell á Snæfellsnesi – Umhverfishönnun og skipulag | 1.795.000 | |
Samtals | 576.246.200 | |||
Úthlutanir 2014 | ||||
14-001 | Akureyrarstofa (María H. Tryggvadóttir) | Kennileiti fyrir heimskautsbauginn í Grímsey | 3.200.000 | 3. styrkur |
14-002 | Bakhjarlarnir | Lýsulaugasvæðið – Yfirsýn, samræming og heildarskipulag | 2.065.000 | |
14-003 | Blönduósbær | Fuglaskoðun á Einarsnesi í Blönduósbæ | 4.085.000 | |
14-004 | Borgarbyggð/sveitarstjóri | Sögubærinn Borgarnes | 5.000.000 | 2. styrkur |
14-005 | Borgarbyggð/umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi | Hraunfossar, nýframkvæmd til varnar fallhættu og almennt viðhald | 2.950.000 | |
14-006 | Dalvíkurbyggð | Friðland Svarfdæla – Aðgengi, upplýsingar, öryggi | 500.000 | |
14-007 | Djúpavogshreppur | Teigarhorn – í átt að aukinni sjálfbærni: Deiliskipulag, uppbygg- ing stíga og endurbætur á húsakosti | 11.590.000 | |
14-008 | Eyjafjarðarsveit | Merking og stikun gönguleiða í Eyjafjarðarsveit | 1.000.000 | |
14-009 | Fljótsdalshérað | Dyrfjöll – Stórurð, gönguparadís til framtíðar | 5.000.000 | 2. styrkur |
14-010 | Fljótsdalshreppur | Hengifoss – Bætt aðgengi | 2.300.000 | 2. styrkur |
14-011 | Flóahreppur | Urriðafoss | 1.500.000 | |
14-012 | Fuglavernd | Friðland í Flóa – Fyrir fólk og fugla – Endurbætur og uppbygging | 950.000 | |
14-013 | Hafnarfjarðarbær | Seltún – Áframhaldandi uppbygging | 1.600.000 | 3. styrkur |
14-015 | Hrunamannahreppur og landeigendur Jaðri I | Gullfoss, aðgengi á Austurbakka | 1.400.000 | |
14-016 | Hveragerðisbær | Reykjadalur – Aðkoma og bílaplan | 2.000.000 | |
14-017 | Jarðvangurinn Katla Geopark | Katla jarðvangur – Uppbygging áningarstaða | 4.580.000 | |
14-018 | Kerlingarfjallavinir | Slysavarnir á háhitasvæðum í Kerlingarfjöllum | 1.560.500 | |
14-019 | Lionsklúbbur Laugardals | Göngustígar í Laugardal | 700.000 | |
14-020 | Minjastofnun Íslands | Stöng í Þjórsárdal, verndun og uppbygging | 10.000.000 | 3. styrkur |
14-021 | Rangárþing eystra | Hönnun og framkvæmdir við tröppur og stíg norðan megin við Seljalandsfoss | 8.500.000 | |
14-022 | Rangárþing eystra | Útsýnispallur og öryggishandrið við miðju Skógarfoss | 2.200.000 | 3. styrkur |
14-023 | Rangárþing ytra | Deiliskipulag fyrir Landmannalaugar | 10.000.000 | 2. styrkur |
14-024 | Rannsóknastöð skógræktar ríkisins | Gerð göngustíga í Esjuhlíðum ofan Mógilsár | 1.095.000 | 2. styrkur |
14-025 | Reykjanes jarðvangur ses | Reykjanes – Þar sem Atlantshafshryggurinn rís úr sæ | 5.000.000 | |
14-026 | Reykjavíkurborg | Fræðslu- og dvalarsvæði í Viðey | 5.000.000 | 2. styrkur |
14-027 | Reynisfjara ehf. | Veitinga- og þjónustuhús í Reynisfjöru | 4.000.000 | |
14-028 | Skaftárhreppur | Áningarstaður í Eldhrauni | 10.000.000 | |
14-029 | Skeiða- og Gnúpverjahreppur | Gjáin í Þjórsárdal, umhverfi og aðgengi | 2.250.000 | |
14-030 | Skógrækt ríkisins | Þjónustuhús í þjóðskóginum á Laugarvatni | 4.900.000 | 3. styrkur |
14-031 | Skógrækt ríkisins | Gönguleiðir og útsýnisstaður við Systrafoss | 700.000 | |
14-032 | Súðavíkurhreppur | Hvítanes í Skötufirði | 2.444.860 | |
14-033 | Sveitarfélagið Hornafjörður | Jöklaleiðin – Gönguleið milli Skálafells og Göngubrúar yfir Hólmsá | 3.100.000 | 4. styrkur |
14-034 | Sveitarfélagið Skagafjörður | Arnarstapi í Skagafirði – Lagfæring, hönnun, stígagerð og merkingar | 3.700.000 | |
14-035 | Sveitarfélagið Vogar | Lambafellsgjá | 362.500 | |
14-036 | Sveitarfélagið Ölfus | Reykjadalur 2014 | 7.000.000 | 3. styrkur |
14-037 | Umhverfisstofnun | Salernisaðstaða við Hverfjall (Hverfell) í Mývatnssveit | 13.250.000 | |
14-038 | Umhverfisstofnun | Nýr stigi við Gullfoss | 10.065.000 | 3. styrkur |
14-039 | Umhverfisstofnun | Útsýnispallur auk göngustíga beggja vegna hans við Gullfoss | 8.195.000 | 4. styrkur |
14-040 | Umhverfisstofnun | Bætt aðgengi að Skútustaðagígum í Mývatnssveit | 3.750.000 | |
14-041 | Umhverfisstofnun | Skarðsvík – Aðgengi fyrir alla að sandströnd | 1.000.000 | |
14-042 | Umhverfisstofnun | Hesteyri, stígar og ferðaleiðir | 1.152.000 | |
14-043 | Umhverfisstofnun | Þjóðleið á Hornströndum | 1.100.000 | |
14-044 | Vatnajökulsþjóðgarður | Uppbygging við Langasjó | 13.250.000 | |
14-045 | Vatnajökulsþjóðgarður | Kolgríma – Göngubrú | 3.100.000 | |
14-046 | Vatnajökulsþjóðgarður | Viðbygging í Skaftafelli | 29.700.000 | 2. styrkur |
14-047 | Vestmannaeyjabær | Blátindur – Sýningarsvæði vélbátasögu Vestmannaeyja | 3.000.000 | |
14-048 | Vinir Þórsmerkur | Viðhald gönguleiða á Þórsmerkursvæðinu | 2.600.000 | 4. styrkur |
14-049 | Þingeyjarsveit | Endurbætur á umhverfi Goðafoss | 15.000.000 | 2. styrkur |
14-050 | Æðarvarp ehf. | Illugastaðir á Vatnsnesi | 665.000 | |
14-051 | Langanesbyggð | Viðbótarstyrkur vegna Stórakarls við Skoruvíkurbjarg | 2.000.000 | 3. styrkur |
14-101 | Bláskógabyggð | Geysir hverasvæði, hönnun stígagerð, öryggisgrindverk | 15.000.000 | 2. styrkur |
14-102 | Dalvíkurbyggð | Friðland Svarfdæla – Göngustígar | 682.750 | 2. styrkur |
14-103 | Djúpivogur | Teigarhorn, lagfæringar á göngustígum | 5.000.000 | 2. styrkur |
14-104 | Fjarðabyggð | Göngustígar friðlandi Hólmanesi | 1.000.000 | |
14-105 | Fjarðabyggð | Saxa sjávarhver í Stöðvarfirði – Göngustígar og öryggismál | 4.000.000 | 2. styrkur |
14-106 | Fljótsdalshérað | Fardagafoss – Göngustígar, öryggismál, göngubrú | 1.300.000 | |
14-107 | Fljótsdalshreppur | Hengifoss, bætt aðgengi, stígagerð | 2.000.000 | 3. styrkur |
14-108 | Flóahreppur | Urriðafoss, viðgerð á gróðri, stígagerð og öryggismál | 5.618.900 | 2. styrkur |
14-109 | Grundarfjörður | Kirkjufellsfoss, göngustígar og varnir gegn utanvegaakstri | 15.700.000 | |
14-110 | Hafnarfjarðarbær | Seltún: Áframhaldandi uppbygging (Krýsuvík), viðhald göngustíga, uppgræðsla og öryggishliðar | 1.770.000 | 2. styrkur |
14-111 | Helgafellssveit (á Snæfellsnesi) | Helgafell í Helgafellssveit – Göngustígagerð, náttúruvernd | 6.424.765 | |
14-112 | Hvalfjarðarsveit | Glymur – Botnsdalur, stígagerð, uppgræðsla og öryggisframkvæmdir | 2.000.000 | 2. styrkur |
14-113 | Hveragerðisbær | Reykjadalur: Viðgerðir við hveri, stígagerð, uppgræðsla | 1.000.000 | 2. styrkur |
14-114 | Hrunamannahreppur (Kerlingarfjöll) | Kerlingafjöll – Stígar, brýr, tröppur, náttúruvernd | 9.000.000 | |
14-115 | Landgræðsla ríkisins | Víkurfjara – Gerð handriða, umferðarhindrana og göngustíga | 1.200.000 | |
14-116 | Minjastofnun Íslands | Stöng í Þjórsárdal, verndun og uppbygging á stígum | 5.000.000 | 4. styrkur |
14-117 | Mýrdalshreppur | Víkurfjara – Stígagerð og stækkun á rútustæði | 500.000 | |
14-118 | Mýrdalshreppur | Gönguleiðir í Mýrdalssveit | 900.000 | |
14-119 | Rangárþing eystra | Fimmvörðuháls – Öryggismál, stikun gönguleiða, merkingar, náttúruvernd | 750.000 | 3. styrkur |
14-120 | Rangárþing eystra | Útsýnispallur, þ.e. öryggispallur og öryggishandriði við miðju Skógarfoss. Klettanef og hætta á alvarlegum slysum í dag | 2.200.000 | 3. styrkur |
14-121 | Rangárþing eystra | Svæði við Gígjökul – Stígagerð, náttúruvernd, varnir við utanvegaakstri | 2.900.000 | |
14-122 | Rangárþing eystra | Völvuskógur – Viðhald göngustíga | 500.000 | |
14-123 | Rangárþing eystra | Hönnun og framkvæmdir við tröppur og stíg norðan megin við Seljalandsfoss | 8.650.000 | 2. styrkur |
14-124 | Rangárþing ytra | Þjófafoss – Bætt aðgengi, lagfæring stíga, öryggishandrið og varúðarskilti vegna hruns | 2.000.000 | |
14-125 | Rangárþing ytra | Fossbrekkur – Uppgræðsla, lagfæring stíga | 2.000.000 | |
14-126 | Rangárþing ytra | Ægissíðufoss – Uppgræðsla, stígagerð og endurgerð öryggispalls og handriðs | 2.000.000 | |
14-127 | Rangárþing ytra | Friðland að fjallabaki, aðkomuskilti og stikur – Öryggi ferðamanna | 2.200.000 | |
14-128 | Rangárþing ytra | Göngustígur milli Ægissíðufoss og Árbæjarfoss | 5.000.000 | |
14-129 | Reykjanesjarðvangur ses | Valahnjúkar, göngustígar og öryggismál | 3.240.000 | |
14-130 | Skaftárhreppur | Fjaðrárgljúfur – Öryggispallar, viðhald stíga, náttúruvernd og öryggismál | 2.000.000 | |
14-131 | Skeiða- og Gnúpverjahreppur | Gjáin í Þjórsárdal, uppgræðsla og stígagerð | 2.250.000 | 2. styrkur |
14-132 | Skeiða- og Gnúpverjahreppur | Hjálparfoss í Þjórsárdal – Lagfæring stíga, náttúruvernd og öryggismál | 4.000.000 | |
14-133 | Skógrækt ríkisins | Mógilsá – Gerð göngustíga í Esjuhlíðum ofan Mógilsár/Rann- sóknarstöð Skógræktar ríkisins | 1.000.000 | |
14-134 | Skógrækt ríkisins | Þórsmörk – Stígagerð og viðhald | 5.000.000 | |
14-135 | Skógrækt ríkisins | Hjálparfoss í Þjórsárdal, stígagerð, nýframkvæmd, bæta aðgengi að fossinum | 2.000.000 | |
14-136 | Skógrækt ríkisins | Kirkjubæjarklaustur, stígagerð, nýframkvæmd, stigi upp að Systrafossi (öryggismál) | 2.000.000 | |
14-137 | Skógrækt ríkisins | Litla-Skarð, stígagerð, nýframkvæmd – Að gili í Norðurá neðan við Laxfoss | 2.000.000 | |
14-138 | Skútustaðahreppur | Hverir/austan Námaskarðs – Lagfæring stíga og öryggismál | 10.000.000 | |
14-139 | Sveitarfélagið Hornafjörður | Jöklaleiðin: Gönguleið milli Skála- fells og göngubrúar yfir Hólmsá | 3.100.000 | 3. styrkur |
14-140 | Sveitarfélagið Hornafjörður | Gönguleið milli Fláajökuls og Haukafells – Göngubrú, stígagerð, stikun, umferðastýring og öryggismál | 8.000.000 | |
14-141 | Sveitarfélagið Vogar | Lambafellsgjá – Lagfæring göngustíga | 362.500 | 2. styrkur |
14-142 | Sveitarfélagið Ölfus | Reykjadalur 2014 – Uppgræðsla, göngustígar | 8.000.000 | 4. styrkur |
14-143 | Umhverfisstofnun | Mývatn og Laxá – Lagfæring göngustígs að Vindbelgjarfjalli | 600.000 | |
14-144 | Umhverfisstofnun | Mývatn og Laxá – Lagfæring göngustígs við Kálfaströnd | 600.000 | |
14-145 | Umhverfisstofnun | Mývatn og Laxá – Göngustígur kringum Vindbelgjarfjall (lokaður á varptíma) | 800.000 | |
14-146 | Umhverfisstofnun | Skútustaðagígar – Göngustígar, lagning efnis í göngustíga í Rófunum | 6.000.000 | |
14-147 | Umhverfisstofnun | Skútustaðagígar – Göngustígar, breyting á staðsetningu og efnisílögn | 3.000.000 | 2. styrkur |
14-148 | Umhverfisstofnun | Seljahjallagil o.fl. – Stígagerð | 500.000 | |
14-149 | Landgræðsla ríkisins (UST) | Dimmuborgir – Stígagerð, viðhald | 1.500.000 | 4. styrkur |
14-150 | Landgræðsla ríkisins (UST) | Dimmuborgir – Stígagerð, afmörkun | 200.000 | 3. styrkur |
14-151 | Umhverfisstofnun | Friðland Svarfaðardal – Göngu- stígur meðfram Svarfaðardalsá | 1.000.000 | |
14-152 | Umhverfisstofnun | Friðland Svarfaðardal – Göngustígur frá Hríshöfðanum | 500.000 | |
14-153 | Umhverfisstofnun | Norðurland eystra – Göngustígar, uppbygging | 3.000.000 | |
14-154 | Umhverfisstofnun | Hornstrandir – Viðhald göngustíga 2v Hesteyri | 300.000 | |
14-155 | Umhverfisstofnun | Dynjandi – Útsýnispallar úr stáli með tréhandriði x2 | 7.000.000 | 2. styrkur |
14-156 | Umhverfisstofnun | Dynjandi – Göngustígagerð með sjálfboðaliðum í 2 vikur | 300.000 | |
14-157 | Umhverfisstofnun | Vatnsfjörður – Göngustígagerð með sjálfboðaliðum í 1 viku | 150.000 | |
14-158 | Umhverfisstofnun | Grábrók – Loka stígum með trépöllum (uppbyggður tré- göngupallur) | 7.000.000 | |
14-159 | Umhverfisstofnun | Búðir – Göngustígur frá kirkju að „gatnamótum“ | 1.000.000 | |
14-160 | Umhverfisstofnun | Arnarstapi – Hellnar – Göngustígur (tré) frá höfninni á Arnarstapa að Pumpu, 300 m (skipulag og framkvæmd) | 200.000 | |
14-161 | Umhverfisstofnun | Arnarstapi – Hellnar – Göngustígur (tré) frá Hellnafjöru að hraunkanti (Arnarstapa) 500 m | 7.000.000 | 2. styrkur |
14-162 | Umhverfisstofnun | Arnarstapi – Hellnar – Að Gatkletti, leggja ecogrids 100 m. Kostnaður við flutning á efni og jarðvinnu | 1.000.000 | 3. styrkur |
14-163 | Umhverfisstofnun | Arnarstapi – Hellnar – Smíða pall fram á bjargsbrún neðan við Bárð (teikning tilbúin) | 2.500.000 | 4. styrkur |
14-164 | Umhverfisstofnun | Þjóðgarður (Skálasnagi) – Göngustígur frá bílastæði að bjargbrún | 7.000.000 | |
14-165 | Umhverfisstofnun | Eldborg Bláfjöllum – Lokun gönguleiða og lagfæring á mosaskemmdum | 700.000 | |
14-166 | Umhverfisstofnun | Friðland að Fjallabaki – Samstæðir vegprestar á gönguleiðir | 700.000 | 3. styrkur |
14-167 | Umhverfisstofnun | Friðland að Fjallabaki – Úrbætur í stígagerð, Laugavegur og önnur viðkvæm svæði | 1.500.000 | 2. styrkur |
14-168 | Umhverfisstofnun | Friðland að Fjallabaki – Upp- græðsla og lagfæring gönguleiða í og við Landmannalaugar | 1.500.000 | |
14-169 | Umhverfisstofnun | Hveravellir – Viðhald á göngustígum | 500.000 | |
14-170 | Umhverfisstofnun | Gullfoss – Nýr útsýnispallur, lokafrágangur á efra svæði | 2.000.000 | 5. styrkur |
14-171 | Umhverfisstofnun | Gullfoss – Endurnýjun á eldri útsýnispalli | 8.000.000 | 6. styrkur |
14-172 | Umhverfisstofnun | Gullfoss – Endurnýjun stiga milli efra og neðra svæðis | 10.000.000 | 7. styrkur |
14-173 | Umhverfisstofnun | Gullfoss – Nýjar girðingar niður með ánni | 3.000.000 | 8. styrkur |
14-174 | Umhverfisstofnun | Dyrhólaey – Styrking göngustíga (í takt við stýringu) | 1.500.000 | |
14-175 | Umhverfisstofnun | Teigarhorn – Ofaníburður göngustíga | 500.000 | 2. styrkur |
14-176 | Umhverfisstofnun | Teigarhorn – Tréstigar í fjöru | 1.000.000 | |
14-177 | Vatnajökulsþjóðgarður | Eldgjá – Bætt aðgengi og öryggi ferðamanna – annar áfangi | 14.250.000 | 2. styrkur |
14-178 | Vatnajökulsþjóðgarður | Skaftafell – Bygging 50 m 2 útsýnispalls við Svartafoss og aðgerðir á svæðinu til að hefta rof | 15.000.000 | 3. styrkur |
14-179 | Vatnajökulsþjóðgarður | Skaftafell – Lagfæringar á göngustíg að Svartafossi, sett ræsi, og uppsetning handriða | 10.000.000 | 4. styrkur |
14-180 | Vatnajökulsþjóðgarður | Dettifoss – Nýr 100 m 2 útsýnis- pallur við Dettifoss að vestan | 15.000.000 | 2. styrkur |
14-181 | Vatnajökulsþjóðgarður | Dettifoss – Nýr um 260 m langur göngupallur við Dettifoss að vestan | 25.000.000 | 3. styrkur |
14-182 | Vestmannaeyjar | Eldfell – Lagfæring gönguleiða | 1.000.000 | |
14-183 | Vestmannaeyjar | Heimaklettur – Uppgræðsla, merking gönguleiða | 5.000.000 | |
14-184 | Vesturbyggð | Látrabjarg, Bjargtangar – Stígar og öryggi | 14.000.000 | 2. styrkur |
14-185 | Þingeyjarsveit | Endurbætur á umhverfi Goðafoss (uppgræðsla, stigagerð og öryggishandrið) | 15.000.000 | |
14-186 | Þingvallarþjóðgarður | Þingvellir – Flosgjá (peningagjá) | 11.000.000 | |
14-187 | Þingvalalrþjóðgarður | Þingvellir – Auka alla afmörkun á stígum með kaðlagirðingum | 2.000.000 | |
14-188 | Rangárþing Eystra – Þórsmörk | Þórsmörk – Viðhald gönguleiða | 15.349.159 | 2. styrkur |
Samtals | 623.957.934 | |||
Úthlutanir 2015 | ||||
15-001 | Akraneskaupsstaður | Breiðin á Akranesi | 12.000.000 | 2. styrkur |
15-002 | Blönduósbær | Hrútey, fólkvangur – Uppbygging áfangastaðar | 1.780.000 | |
15-003 | Borgarbyggð | Nýtt bílastæði við Grábrók og salernisaðstaða | 4.900.000 | |
15-004 | Borgarfjarðarhreppur | Hönnun þjónustuhúsa við Hafnarhólma | 3.000.000 | |
15-005 | Dalabyggð | Strandstígur í Búðardal | 2.900.000 | |
15-006 | Ferðamálahópur Borgarfjarðar eystri | Vegvísar og stikur á Víknaslóðum við Borgarfjörð eystri | 500.000 | |
15-007 | Félag ferðaþjónustunnar í Skagafirði | Fosslaug – Reykjarfoss í Skagafirði | 600.000 | |
15-008 | Fjallabyggð | Gönguleiðir í Fjallabyggð | 2.000.000 | |
15-009 | Fljótsdalshérað | Stórurð: Gönguparadís til framtíðar | 5.000.000 | 3. styrkur |
15-010 | Fljótsdalshreppur | Hengifoss – Göngustígar og bílaplan | 5.000.000 | 4. styrkur |
15-011 | Gunnarsstofnun | Skriðuklaustur – Aðgengi fyrir alla | 800.000 | 3. styrkur |
15-012 | Héraðsnefnd Þingeyinga | Þingey í Skjálfandafljóti | 1.577.000 | |
15-013 | Húnavatnshreppur | Þrístapar/Ólafslundur | 1.680.500 | |
15-014 | Hvalfjarðarsveit | Glymur í Botnsdal | 830.000 | 3. styrkur |
15-015 | Höfuðborgarstofa | Hjólaborgin Reykjavík | 2.500.000 | |
15-016 | Kerlingafjallavinir | Kerlingafjöll – Gönguleiðir og vegprestar | 1.945.000 | 2. styrkur |
15-017 | Landgræðsla ríkisins | Dimmuborgir – Malbikun og viðhald göngustíga | 3.000.000 | 2. styrkur |
15-018 | Landgræðsla ríkisins | Skilti í Dimmuborgum | 425.000 | |
15-019 | Læknishúsið á Hesteyri/Hrólfur Vagnsson | Virkjun fyrir Læknishúsið á Hesteyri | 5.000.000 | |
15-020 | Minjastofnun Íslands | Stöng í Þjórsárdal | 2.500.000 | 5. styrkur |
15-021 | Ólafsdalsfélagið | Endurreisn Ólafsdals í Gilsfirði, 2. áfangi | 1.500.000 | |
15-022 | Ósafell | Hvítserkur, fyrri áfangi | 9.500.000 | 4. styrkur |
15-023 | Rangárþing eystra | Stíga- og tröppugerð við Hamragarða | 1.350.000 | 2. styrkur |
15-024 | Rangárþing eystra | Fimmvörðuháls – Númerun og hnitsetning á stikum | 1.000.000 | 4. styrkur |
15-025 | Reykjanes jarðvangur | Brimketill: Deiliskipulag og hönnun | 1.250.000 | |
15-026 | Reykjanes jarðvangur | Uppbygging áningarstaðar í Reykjanes jarðvangi | 1.500.000 | |
15-027 | Reykjanes jarðvangur | Keilir, merking gönguleiða | 630.000 | |
15-028 | Saga Jarðvangur Project | Viðbótarframlag í rammaskipulag fyrir Sögu Jarðvang | 635.000 | 2. styrkur |
15-029 | Skógrækt ríkisins Vöglum | Deiliskipulag og hönnun á áningarstöðum í Vaglaskógi | 2.585.175 | |
15-030 | Skógræktarfélag Reykjavíkur | Esjustígur, endurbætur á gönguleið um Einarsmýri | 5.100.000 | |
15-031 | Snæfellsbær | Bjarnarfoss í Staðarsveit, aðgengi fyrir alla, allt árið | 10.000.000 | |
15-032 | Snæfellsbær | Rauðfeldargjá: Skipulag, hönnun, teikningar og leyfi | 800.000 | |
15-033 | Snæfellsbær | Snæfellsbær – Svöðufoss, hönnun á göngustíg, bílastæði og áningarstað | 500.000 | |
15-034 | Súðavíkurhreppur | Aðkoma, aðstaða og aðgengi ferðamanna að náttúruperlunni Reykjanesi við Ísafjarðardjúp | 1.500.000 | |
15-035 | Sveitarfélagið Árborg | Uppbygging Knarrarósvita á Stokkseyri | 2.030.000 | |
15-036 | Sveitarfélagið Ölfus | Reykjadalur | 8.000.000 | 5. styrkur |
15-037 | Umhverfisstofnun | Hverfjall (Hverfell): Bygging skólphreinsivirkis | 9.213.244 | |
15-038 | Umhverfisstofnun | Útsýnispallur auk göngustíga beggja vegna við Gullfoss | 5.000.000 | 9. styrkur |
15-039 | Umhverfisstofnun | Nýr stigi við Gullfoss | 5.000.000 | 10. styrkur |
15-040 | Umhverfisstofnun | Bættar merkingar og stýring á Laugaveginum innan Friðlands að Fjallabaki | 2.000.000 | |
15-041 | Umhverfisstofnun | Dynjandi, bætt aðgengi | 4.969.100 | 3. styrkur |
15-042 | Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni | Deiliskipulag Útilífsmiðstöðvar skáta Úlfljótsvatni | 1.000.000 | |
15-043 | Vatnajökulsþjóðgarður | Salernisaðstaða við Snæfellsskála | 12.000.000 | |
15-044 | Vatnajökulsþjóðgarður | Þurrsalernisbúnaður fyrir salernishús í Vikraborgum, Öskju | 7.950.000 | |
15-045 | Vatnajökulsþjóðgarður | Göngustígur að Skaftafellsjökli | 5.100.000 | 5. styrkur |
15-046 | Vatnajökulsþjóðgarður | Skaftafell, Svartifoss gönguleið | 3.650.000 | 6. styrkur |
15-047 | Vestmannaeyjabær | Sprangan – Aðgengi og merkingar | 2.500.000 | |
15-048 | Vinir Þórsmerkur | Viðhald gönguleiða á Þórsmerkursvæðinu | 4.000.000 | 5. styrkur |
15-049 | Þingeyjarsveit | Endurbætur á umhverfi Goðafoss | 5.000.000 | 3. styrkur |
15-050 | Þrísker ehf. | Fyrstihúsið í Flatey: Salernis- aðstaða og aðgengi fyrir fatlað fólk | 2.500.000 | 3. styrkur |
Samtals | 175.700.019 | |||
Heildarfjárhæð styrkja 2012–2015 | 1.444.904.153 |
2. Hvernig er eftirliti með nýtingu styrkjanna háttað?
Styrkþegar skila inn framvindu- og lokaskýrslu ásamt reikningum fyrir kostnaði, myndum og hönnunargögnum til Ferðamálastofu sem fer með umsýslu sjóðsins. Umhverfisstjóri og rekstrarstjóri Ferðamálastofu fara yfir gögnin, gera athugasemdir og eiga samskipti í gegnum tölvupóst og síma við styrkþega. Umhverfisstjóri Ferðamálastofu hefur einnig farið í nokkrar vettvangsferðir og veitt handleiðslu og ráðgjöf en ekki er formlegt eftirlit á verkstað á vegum sjóðsins eða Ferðamálastofu. Stjórn Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða fær reglulega yfirlit frá Ferðamálastofu um stöðu verkefna og fylgist með greiðslum úr sjóðnum.
3. Eru dæmi um að verkefni hafi hlotið styrki úr sjóðnum oftar en einu sinni og ef svo er, hvaða verkefni?
Alls hafa 55 verkefni fengið styrk oftar en einu sinni en nánari upplýsingar er að finna í töflu í 1. tölul. fyrirspurnarinnar. Hafa ber í huga að um getur verið að ræða mismunandi verkefni á sama ferðamannastað. Verkefnin eru oft unnin í áföngum og úthlutað til hvers áfanga miðað við framkvæmdir þess árs. Í sumum tilvikum er um að ræða mismunandi verkþætti á sama stað, t.d. við Gullfoss. Þar var unnin skipulagsvinna fyrir allt svæðið en verkefninu svo skipt í áfanga á einstökum stöðum innan svæðisins.
4. Hefur ráðherra staðið fyrir mati á framkvæmd laga um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða líkt og kveðið er á um í ákvæði til bráðabirgða I í lögunum?
Samhliða vinnu við undirbúning og samningu frumvarps til laga um náttúrupassa var lagt mat á gildandi lög um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða. Frumvarpið um náttúrupassa var lagt fram á yfirstandandi þingi og í 11. gr. þess er m.a. að finna tillögur til breytinga á lögum um sjóðinn.