Ferill 772. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Prentað upp.
Þingskjal 1351 — 772. mál.
Skriflegt svar.
Fyrirspurn
til mennta- og menningarmálaráðherra um starfshóp
um háskólana í Norðvesturkjördæmi.
Frá Katrínu Jakobsdóttur.
Hefur starfshópur sem skoða átti fjárhagslegan og faglegan ávinning af aukinni samvinnu eða samrekstri háskólanna í Norðvesturkjördæmi, þ.e. Landbúnaðarháskóla Íslands, Hólaskóla og Háskólans á Bifröst, skilað niðurstöðum sínum? Ef svo er, hverjar eru þær? Ef ekki, hvenær er von á niðurstöðunum?
Skriflegt svar óskast.