Ferill 774. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Prentað upp.

Þingskjal 1360  —  774. mál.
Skriflegt svar.




Fyrirspurn



til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um nýtingaráætlanir veiðifélaga.

Frá Össuri Skarphéðinssyni.


     1.      Hversu mörg veiðifélög eða veiðiréttarhafar skv. 19. gr. laga um lax- og silungsveiði eru í landinu?
     2.      Hversu mörg/margir þeirra hafa skilað nýtingaráætlun til Fiskistofu?
     3.      Hefur Fiskistofa í einhverjum tilvikum notað heimild samkvæmt framangreindri lagagrein til að setja að eigin frumkvæði slíka áætlun eða reglur sem samsvara henni?


Skriflegt svar óskast.