Ferill 801. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1443 — 801. mál.
Fyrirspurn
til innanríkisráðherra um fullnustugerðir og fjárnám árin 2008–2015.
Frá Jóni Þór Ólafssyni.
1. Hversu margar fasteignir annars vegar einstaklinga og hins vegar lögaðila voru seldar nauðungarsölu á mánuði í hverju sýslumannsembætti árin 2008–2015?
2. Hversu mörg fjárnám fóru fram á mánuði hjá annars vegar einstaklingum og hins vegar lögaðilum í hverju sýslumannsembætti árin 2008–2015?
3. Hversu margir einstaklingar og lögaðilar voru skráðir með árangurslaust fjárnám hvern mánuð árin 2008–2015?
Skriflegt svar óskast.