Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1584, 144. löggjafarþing 703. mál: þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta (nýting landsréttinda, óbyggðanefnd o.fl.).
Lög nr. 86 13. júlí 2015.
Þingskjal 1584, 144. löggjafarþing 703. mál: þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta (nýting landsréttinda, óbyggðanefnd o.fl.).
Lög nr. 86 13. júlí 2015.
Lög um breytingu á lögum um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta, nr. 58/1998, með síðari breytingum (nýting landsréttinda, óbyggðanefnd o.fl.).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:- 1. málsl. 2. mgr. orðast svo: Leyfi ráðherra þarf til að nýta vatns- og jarðhitaréttindi, vindorku, námur og önnur jarðefni innan þjóðlendu nema mælt sé fyrir um annað í lögum.
- Í stað orðanna „þeirrar þjóðlendu sem leyfið tekur til“ í 4. málsl. 4. mgr. kemur: þjóðlendna samkvæmt nánari ákvörðun sveitarstjórnar.
2. gr.
Við 2. mgr. 6. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Heimilt er þó að víkja frá 70 ára aldurshámarki.3. gr.
Í stað ártalsins „2014“ í lokamálslið 8. gr. laganna kemur: 2015.4. gr.
1. málsl. 3. mgr. 18. gr. laganna orðast svo: Ráðherra skal hafa frumkvæði að því að þinglýsa eignarheimildum sem varða þjóðlendur.5. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 1. júlí 2015.