Ferill 818. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1616  —  818. mál.




Fyrirspurn



til um­hverfis- og auðlindaráðherra um losun gróðurhúsaloftteg­unda.

Frá Sigríði Á. Andersen.


    Hvernig skiptist losun gróðurhúsaloftteg­unda á Íslandi á eftirfarandi geira á árinu 2012 þegar tekið er tillit til nýjasta mats á losun gróðurhúsaloftteg­unda frá framræstu landi miðað við losunarstuðla í nýjum leiðbeiningum IPCC, sbr. svar ráðherra í 317. máli, þar sem fram kemur að ef miðað er við losunarstuðla í nýjum leiðbeiningum IPCC nemur losun frá framræstu landi í skóglendi 3,6 þúsundum tonna CO 2-ígilda, losun frá framræstu ræktuðu landi 2,16 milljónum tonna CO 2-ígilda og losun frá framræstu mólendi 9,47 milljónum tonna CO 2-ígilda:
     a.      rafmagn og hita,
     b.      umferð fólksbíla,
     c.      aðrar sam­göngur en með fólksbílum,
     d.      sjávarútveg,
     e.      iðnað/efnanotkun,
     f.      landbúnað,
     g.      úrgang,
     h.      framræst mólendi,
     i.      framræst skóglendi,
     j.      framræst ræktað land,
     k.      aðra geira, ef um þá er að ræða?
    Spurt er um magnlosun (tonn CO 2-ígildi) og hlutfallslega (%) losun gróðurhúsaloftteg­unda.


Skriflegt svar óskast.

Greinargerð.

    Fyrirspurn um sama efni var lögð fram fyrr á 144. löggjafarþingi (þskj. 1115 í 649. máli). Tölur í svari ráðherra við þeirri fyrirspurn (þskj. 1230 í 649. máli) fyrir losun frá framræstu landi miðað við losunarstuðla í nýjum leiðbeiningum IPCC virðast ekki í samræmi við tölur í svari ráðherra í þskj. 579 í 317. máli. Því er fyrirspurnin lögð fram að nýju.