Ferill 820. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1618 — 820. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um takmörkun á greiðsluþátttöku
sjúkratrygginga vegna lyfja.
Frá Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur.
1. Hefur fjöldatakmörkunum verið beitt við ákvörðun um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga vegna lyfja? Ef svo er, óskast svar sundurliðað eftir því hvort um S-merkt lyf er að ræða eða önnur.
2. Ef fjöldatakmörkunum af þessu tagi hefur verið beitt:
a. á hvaða lagagrundvelli hefur það verið gert,
b. hversu mörgum sjúklingum hefur verið synjað um lyf á þessu ári,
c. hvaða lyf var þeim sjúklingum synjað um, og
d. hyggst þá ráðherra beita sér fyrir afnámi takmarkananna?
Skriflegt svar óskast.