Ferill 65. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 65  —  65. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um kaup ríkisins á Grímsstöðum á Fjöllum.


Flm.: Ögmundur Jónasson, Svandís Svavarsdóttir.


    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að leita eftir samningi um kaup á Grímsstöðum á Fjöllum og tryggja þannig að jörðin verði þjóðareign.

Greinargerð.

    Fyrirliggjandi þingsályktunartillaga var síðast flutt sem 55. mál á 144. löggjafarþingi af núverandi flutningsmanni. Eftir að mælt hafði verið fyrir málinu á 144. löggjafarþingi gekk það til allsherjar- og menntamálanefndar en málið varð ekki útrætt og er því endurflutt. Þingsályktunartillagan var fyrst flutt sem 269. mál á 141. löggjafarþingi af Guðfríði Lilju Grétarsdóttur og síðan af Ögmundi Jónassyni og Svandísi Svavarsdóttur sem 276. mál á 143. löggjafarþingi.
    Við síðasta flutning var sem fyrr vísað til þess að mikil umræða um áform erlendra auðmanna um kaup á hinum víðáttumiklu Grímsstöðum á Fjöllum leiddi til þess að í lok ágúst 2012 undirrituðu um 150 einstaklingar áskorun til Alþingis og ríkisstjórnar undir yfirskriftinni Grímsstaðir á Fjöllum verði þjóðareign þar sem skorað var á stjórnvöld að koma í kring kaupum ríkisins á jörðinni og gera hana að almannaeign jafnframt því að marka skýra stefnu um ríkiseign á hliðstæðum jörðum, sbr. fylgiskjal.
    Enn fremur hefur verið bent á það í fyrri greinargerðum, sem enn skal áréttað, að margt mælir með því að ríkið eignist Grímsstaði á Fjöllum alla. Ríkið á nú þegar um fjórðung í þessari landmiklu jörð og að auki tvær jarðir, Víðidal og Möðrudal, suður af Grímsstöðum. Jörðin er og í þjóðlendujaðrinum og þannig beintengd landi í almannaeigu. Tekið skal undir það sem fram kemur í framangreindri áskorun frá 2012 að æskilegt er að mótuð verði stefna varðandi eignarhald og umráð yfir óbyggðum og þá sérstaklega bújörðum sem teygja sig inn á hálendið.

Fylgiskjal.

Áskorun til Alþingis og ríkisstjórnar:

GRÍMSSTAÐIR Á FJÖLLUM VERÐI ÞJÓÐAREIGN


    Stjórnvöldum ber að standa vörð um eignarhald og umráð landsmanna yfir óbyggðum Íslands og þar með bújörðum sem teygja sig inn á hálendið eða hafa sérstöðu í huga þjóðarinnar af landfræðilegum, sögulegum og menningarlegum ástæðum. Þessa skoðun staðfestum við með undirskrift okkar.
    Við skorum á Alþingi og ríkisstjórn að marka skýra stefnu í þessa veru og ákveða hvaða jarðir í eigu ríkisins skuli aldrei selja og að ríkið muni kaupa hliðstæðar jarðir til að tryggja að þær haldist í þjóðareign.

         Vigdís Finnbogadóttir, fyrrum forseti Íslands
        Ólafur Stefánsson, handknattleiksfyrirliði
        Björk Guðmundsdóttir, tónlistarkona
        Helgi Haukur Hauksson, formaður Samtaka ungra bænda
        Páll Skúlason, heimspekingur, fyrrverandi Háskólarektor
        Ómar Þ. Ragnarsson, fréttamaður
        Matthías Johannessen, rithöfundur
        Brynhildur Halldórsdóttir, æðarræktandi, Syðra-Lóni, Langanesi
        Guðrún Nordal, forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar
        Styrmir Gunnarsson, fyrrv. ritstjóri
        Jón Ólafsson, aðstoðarrektor Háskólans á Bifröst
        Halldór G. Jónasson, stýrimaður, Vopnafirði
        Margrét Kristín Blöndal, tónlistarkona
        Jón Kalman Stefánsson, rithöfundur
        Gunnar Kristjánsson, prófastur, Reynivöllum í Kjós
        Steinþór Heiðarsson, bóndi, Ytri-Tungu á Tjörnesi
        Kristín Steinsdóttir, rithöfundur
        Þóra Ellen Þórhallsdóttir, prófessor í grasafræði, HÍ
        Helgi Valdimarsson, læknir
        Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri
        Ágúst Valfells, verkfræðingur, fyrrv. forst. Almannavarna
        Bragi Benediktsson, bóndi, Grímsstöðum á Fjöllum
        Þorsteinn Bergsson, framkvæmdastjóri Minjaverndar
        Pétur Gunnarsson, rithöfundur
        Elísabet Jónasdóttir, fyrrv. bókavörður, Akureyri
        Elín Agla Briem, meistaranemi í umhverfis- og auðlindafræði
        Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri
        Sigurbjörg Þorsteinsdóttir, ónæmisfræðingur
        Halla Guðmundsdóttir, bóndi, Ásum
        Stefán Jón Hafstein, Reykjavík
        Halldóra Þorsteinsdóttir, sviðsstjóri
        Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, prófessor HÍ og HA
        Hjörleifur Stefánsson, arkitekt
        Hlín Svavarsdóttir, dansari
        Hafsteinn Hjartarson, verktaki
        Vilborg Dagbjartsdóttir, kennari og skáld
        Guðrún Kristjánsdóttir, myndlistarmaður
        Bjarni E. Guðleifsson, prófessor emeritus, Möðruvöllum
        Guðmundur Magnússon, formaður Öryrkjabandalags Íslands
        Margrét Birna Andrésdóttir, læknir
        Agnar H. Gunnarsson, bóndi og oddviti, Miklabæ, Skagafirði
        Helgi Helgason, viðskiptastjóri
        Ólöf Guðrún Helgadóttir, snyrtifræðingur
        Guðmundur Vilhjálmsson, vélfræðingur, Húsavík
        Melkorka Ólafsdóttir, tónlistarkona
        Lára Hanna Einarsdóttir, þýðandi
        Rúnar Þórarinsson, bóndi, Sandfellshaga, Öxarfirði
        Sigríður Stefánsdóttir, réttarfélagsfræðingur
        Kristín Jónsdóttir, náttúrufræðingur og kennari, Vopnafirði
        Steinunn H. Blöndal, ljósmóðir
        Hreinn Friðfinnsson, myndlistarmaður
        Vigdís Grímsdóttir, rithöfundur
        Reimar Sigurjónsson, bóndi, Felli, Finnafirði
        Ólafur Ármann Sigurðsson, skipstjóri, Eyvík, Tjörneshreppi
        Jón Helgason, fyrrv. alþingismaður og ráðherra, Seglbúðum
        Anna Ólafsdóttir Björnsson, tölvunarfræðingur, Álftanesi
        Margrét Helga Vilhjálmsdóttir, húsmóðir
        Þorleifur Gunnlaugsson, varaborgarfulltrúi
        Hulda Sigmarsdóttir frá Húsavík, nemi í arkitektúr
        Svanhildur Kaaber, kennari
        Þórhallur Vilmundarson, örnefnafræðingur
        Anna M. Leósdóttir, myndlistarmaður
        Gunnsteinn Ólafsson, tónlistarmaður
        Baldur Jónasson, fyrrv. markaðsstjóri
        Viðar Gunngeirsson, bóndi, Ásum
        Oddný Eir Ævarsdóttir, rithöfundur
        Hjörleifur Guttormsson, náttúrufræðingur
        Margrét H. Blöndal, myndlistarmaður
        Megas, tónlistarmaður
        Óskar Árni Óskarsson, rithöfundur
        Friðrik Sigurðsson, bóksali, Húsavík
        Andri Snær Magnason, rithöfundur
        Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá, myndlistarmaður
        Svanur Halldórsson, leigubílstjóri, Kópavogi
        Atli Vigfússon, bóndi, Laxamýri, S-þing.
        Þorgerður Þorvaldsdóttir, þroskaþjálfi
        Ósk Vilhjálmsdóttir, myndlistarmaður
        Elísabet Hjörleifsdóttir, hjúkrunarfræðingur og dósent
        Valgarður Egilsson, læknir og rithöfundur
        Hjalti Hugason, prófessor í kirkjusögu
        Anna K. Kristjánsdóttir, vélfræðingur
        Ragnheiður Torfadóttir, frv. rektor MR
        Kristinn Friðfinnsson, sóknarprestur, Selfossi
        Sigurður Pálsson, rithöfundur
        Eiður Svanberg Guðnason, fyrrv. sendiherra
        Sigurður Benediktsson, tannlæknir
        Eggert Pálsson, tónlistarmaður
        Hallfríður M. Pálsdóttir, hómópati
        Bryndís Ísaksdóttir, bókasafnsfræðingur
        Vilhjálmur Geir Kristjánsson, vélfræðingur, Akureyri
        Sólveig Jónsdóttir, aktívisti
        Þórður Helgason, dósent
        Uggi Ævarsson, fornleifafræðingur
        Kristján Karlsson, skáld
        Ólafur G. Einarsson, fyrrv. forseti Alþingis
        Snorri Ingimarsson, læknir
        Guðmundur Gíslason, fyrrv. aðstoðarbankastjóri
        Ása Jóhannesdóttir, leikskólakennari
        Runólfur Guðmundsson, skipstjóri, Grundarfirði
        Ingvar Gíslason, fyrrv. alþingismaður og ráðherra
        Dagbjört H. Óskarsdóttir, snyrtifræðingur
        Andrea Hjálmsdóttir, félagsfræðingur, Akureyri
        Trausti Aðalsteinsson, bæjarfulltrúi í Norðurþingi, Húsavík
        Guðrún Helgadóttir, rithöfundur, fyrrum forseti Alþingis
        Halldór Blöndal, fyrrv. forseti Alþingis
        Guðrún Agnarsdóttir, læknir og fyrrv. alþingismaður
        Sigrún Helgadóttir, fræðibókahöfundur
        Ólafur B. Andrésson, skrifstofumaður
        Kjartan Ólafsson, fyrrv. ritstjóri
        Jón Þórisson, arkitekt
        Sigfinnur Þorleifsson, sjúkrahúsprestur
        Pétur Jónsson, fyrrv. borgarfulltrúi
        Helgi Már Arthúrsson, blaðamaður
        Erlendur Sveinsson, kvikmyndagerðarmaður
        Gunnar Guttormsson, vélfræðingur
        Elín Margrét Hallgrímsdóttir, símenntunarstjóri, Akureyri
        Guðmundur H. Garðarson, fyrrv. alþingismaður
        Pétur Örn Björnsson, arkitekt
        Gunnþór Ingason, sérþjónustuprestur á sviði þjóðmenningar
        Kristín Helga Gunnarsdóttir, rithöfundur
        Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Iceland Airwaves
        Halla Ólafsdóttir, háskólanemi
        Ásdís Bragadóttir, talmeinafræðingur
        Ragnar Arnalds, fyrrverandi ráðherra
        Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, arkitekt
        Kjartan Örn Sigurbjörnsson, sjúkrahúsprestur
        Bjarnheiður Kristín Guðmundsdóttir, örverufræðingur
        Helga Margrét Ögmundsdóttir, prófessor HÍ
        Þórður Björn Sigurðsson, starfsmaður Hreyfingarinnar
        Sigurður E. Guðmundsson, sagnfr. og fyrrv.framkvæmdastj.
        Gísli Tryggvason, lögfræðingur, Kópavogi
        Jóhanna Aradóttir, umsjónarmaður, Álftanesi
        Svavar Gestsson, fyrrv. alþingismaður og ráðherra
        Ingibjörg Jónasdóttir, fyrrv. fræðslustjóri, Reykjavík
        Guðrún Jónsdóttir, arkitekt
        Páll Pétursson, fyrrv. alþingismaður og ráðherra
        Ólafur S. Andrésson, prófessor HÍ
        Björn Vigfússon, menntaskólakennari, Akureyri
        Egill Kolbeinsson, tannlæknir, Hafnarfirði
        Helgi Magnússon, sagnfræðingur
        Árni Gunnarsson, fyrrv. alþingismaður
        Guðrún Eggertsdóttir, bókasafnsfræðingur
        Védís Ólafsdóttir, háskólanemi
        Þorkell Máni Pétursson, útvarpsmaður
        Anna Lísa Björnsdóttir, framkvæmdastjóri
        Guðni Ágústsson, fyrrv. alþingismaður og ráðherra
        Sigurður Örn Guðbjörnsson, mannfræðingur
        Valgerður Andrésdóttir, erfðafræðingur
        Áslaug Agnarsdóttir, sviðsstjóri
        Kári Arnórsson, fyrrverandi skólastjóri
        Svanhildur Halldórsdóttir, Kópavogi
        Þorsteinn frá Hamri, skáld
        Katrín Fjeldsted, læknir
        Ævar Kjartansson, útvarpsmaður
        Ása Ketilsdóttir, Laugalandi við Ísafjarðardjúp
        Páll Óskar Hjálmtýsson, tónlistarmaður