Ferill 103. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 103 — 103. mál.
Fyrirspurn
til umhverfis- og auðlindaráðherra um losun gróðurhúsalofttegunda.
Frá Sigríði Á. Andersen.
Hvernig skiptist losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi á eftirfarandi geira á árinu 2012, þegar tekið er tillit til nýjasta mats á losun gróðurhúsalofttegunda frá framræstu landi miðað við losunarstuðla í leiðbeiningum IPCC, sbr. svar ráðherra í 317. máli á 144. löggjafarþingi, þar sem fram kemur að ef miðað er við losunarstuðla í leiðbeiningum IPCC nemur losun frá framræstu landi í skóglendi 3,6 þúsundum tonna CO
2-ígilda, losun frá framræstu ræktuðu landi 2,16 milljónum tonna CO
2-ígilda og losun frá framræstu mólendi 9,47 milljónum tonna CO
2-ígilda:
a.
rafmagn og hita,
b.
umferð fólksbíla,
c.
aðrar samgöngur en með fólksbílum,
d.
sjávarútveg,
e.
iðnað/efnanotkun,
f.
landbúnað,
g.
úrgang,
h.
framræst mólendi,
i.
framræst skóglendi,
j.
framræst ræktað land,
k.
aðra geira, ef um þá er að ræða?
Spurt er um magnlosun (tonn CO
2-ígilda) og hlutfallslega losun (%) gróðurhúsalofttegunda.
Skriflegt svar óskast.
Greinargerð.
Fyrirspurn um sama efni var lögð fram á 144. löggjafarþingi (þskj. 1115 í 649. máli). Tölur í svari ráðherra við þeirri fyrirspurn (þskj. 1230) um losun frá framræstu landi miðað við losunarstuðla í leiðbeiningum IPCC virðast ekki í samræmi við tölur í svari ráðherra við annarri fyrirspurn (þskj. 579 í 317. máli) og var því fyrirspurnin lögð fram að nýju (þskj. 1616 í 818. máli) en ekki náðist að svara henni og er því fyrirspurnin lögð fram enn á ný.