Ferill 186. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.



Þingskjal 191  —  186. mál.



Tillaga til þingsályktunar

um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2015 um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál) við EES-samninginn.

(Lögð fyrir Alþingi á 145. löggjafarþingi 2015–2016.)




    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2015, frá 30. apríl 2015, um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og fella inn í samninginn tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/99/ESB frá 21. október 2014 um breytingu á tilskipun 2009/126/EB um II. áfanga endurheimtar bensíngufu við eldsneytistöku fyrir vélknúin ökutæki á bensínstöðvum í því skyni að laga hana að tækniframförum.

Athugasemdir við þingsályktunartillögu þessa.

1. Inngangur.
    Með tillögu þessari er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2015, frá 30. apríl 2015, um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og til að fella inn í samninginn tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/99/ESB frá 21. október 2014 um breytingu á tilskipun 2009/126/EB um II. áfanga endurheimtar bensíngufu við eldsneytistöku fyrir vélknúin ökutæki á bensínstöðvum í því skyni að laga hana að tækniframförum.
    Tilskipun 2014/99/ESB fjallar um nýjar staðlaðar kröfur um gufugleypibúnað á eldsneytisstöðvum sem eiga að koma í veg fyrir að aukin losun á rokgjörnum lífrænum efnum frá íblönduðu eldsneyti skaði heilsu fólks.
    Í tillögu þessari er gerð grein fyrir efni gerðarinnar sem um ræðir, en hún felur ekki í sér breytingar á þeim meginreglum sem í EES-samningnum felast. Ákvörðun sameiginlegu EES- nefndarinnar sem hér um ræðir er fylgiskjal með tillögu þessari ásamt gerðinni sjálfri.

2. Um stjórnskipulegan fyrirvara.
    Samkvæmt EES-samningnum skuldbinda ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar aðildarríkin að þjóðarétti um leið og þær hafa verið teknar, nema eitthvert þeirra beiti heimild í 103. gr. EES-samningsins til að setja fyrirvara um að ákvörðun geti ekki orðið bindandi strax vegna stjórnskipulegra skilyrða heima fyrir. Viðkomandi aðildarríki hefur þá sex mánaða frest frá töku ákvörðunar í sameiginlegu nefndinni til að aflétta fyrirvaranum.
    Að því er Ísland varðar hefur stjórnskipulegur fyrirvari almennt einungis verið settur þegar innleiðing ákvörðunar kallar á lagabreytingar hér landi, en í því tilviki leiðir af 21. gr. stjórnarskrárinnar að afla ber samþykkis Alþingis áður en ákvörðun er staðfest. Slíkt samþykki getur Alþingi alltaf veitt samhliða viðeigandi lagabreytingu, en jafnframt getur Alþingi heimilað stjórnvöldum að skuldbinda sig að þjóðarétti með þingsályktun áður en landsréttinum er með lögum breytt til samræmis við viðkomandi ákvörðun.
    Áðurnefnd 21. gr. stjórnarskrárinnar tekur til gerðar þjóðréttarsamninga en hún á augljóslega einnig við um þau tilvik þegar breytingar eru gerðar á slíkum samningum. Samkvæmt ákvæðinu er samþykki Alþingis áskilið ef samningur felur í sér afsal eða kvaðir á landi eða landhelgi eða ef hann horfir til breytinga á stjórnarhögum ríkisins. Síðarnefnda atriðið hefur verið túlkað svo að samþykki Alþingis sé áskilið ef gerð þjóðréttarsamnings kallar á lagabreytingar hér á landi.
    Umrædd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar felur í sér breytingu á EES- samningnum en þar sem hún kallar á lagabreytingar hér á landi var hún tekin með stjórnskipulegum fyrirvara. Í samræmi við það sem að framan segir og . mgr. 45. gr. laga nr. 55/1991, um þingsköp Alþingis, sem kveður á um að stjórnskipulegum fyrirvara skv. 103. gr. samningsins um Evrópska efnahagssvæðið beri að aflétta með þingsályktun, er óskað eftir samþykki Alþingis fyrir þeirri breytingu á EES-samningnum sem í ákvörðuninni felst.

3.     Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/99/ESB frá 21. október 2014 um breytingu á tilskipun 2009/126/EB um II. áfanga endurheimtar bensíngufu við eldsneytistöku fyrir vélknúin ökutæki á bensínstöðvum í því skyni að laga hana að tækniframförum.
    Tilskipun 2014/99/ESB fjallar, eins og áður segir, um nýjar staðlaðar kröfur um gufugleypibúnað á eldsneytisstöðvum sem eiga að koma í veg fyrir að aukin losun á rokgjörnum lífrænum efnum frá íblönduðu eldsneyti skaði heilsu fólks. Kröfur um lágmarksafköst II. stigs gufugleypibúnaðar eru settar fram í staðli EN 16321-1:2013 og prófunaraðferð fyrir búnaðinn í staðli 16321-2:2013. Gerðin breytir tilskipun 2009/126/EB á þann hátt að vísað er í framangreinda staðla.

4. Lagabreytingar og hugsanleg áhrif hér á landi.
    Tilskipun 2014/99/ESB breytir tilskipun 2009/126/EB. Innleiðing síðarnefndu gerðarinnar kallaði á breytingu á efnalögum, nr. 61/2013, þar sem setja þurfti lagastoð fyrir því að skylda rekstraraðila eldsneytisstöðva til að setja upp II. stigs gufugleypibúnað á eldsneytisdælur. Umhverfis- og auðlindaráðherra lagði fram frumvarp til innleiðingar á 2009/126/EB á 144. löggjafarþingi (þskj. 1164, 690. mál) sem Alþingi samþykkti sem lög nr. 63/2015, um breytingu á efnalögum, nr. 61/2013. Efnalög nr. 61/2013, eins og þeim var breytt með lögum nr. 63/2015, hafa að geyma lagastoð fyrir innleiðingu tilskipunar 2014/99/ESB. Þingsályktunartillaga þessi er engu síður lögð fram þar sem lög nr. 55/1991 kveða, eins og fyrr sagði, á um að stjórnskipulegum fyrirvara beri að aflétta með þingsályktun.
    Innleiðing tilskipunar 2014/99/ESB hefur ekki í för með sér breytingu á stjórnsýslu eða kostnaði umfram þann sem leiðir af tilskipun 2009/126/EB.



Fylgiskjal I.


ÁKVÖRÐUN SAMEIGINLEGU EES-NEFNDARINNAR
nr. 122/2015

frá 30. apríl 2015

um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál) við EES-samninginn


SAMEIGINLEGA EES-NEFNDIN HEFUR TEKIÐ NEÐANGREINDA ÁKVÖRÐUN

með vísan til samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, er nefnist „EES-samningurinn“ í því sem hér fer á eftir, einkum ákvæða 98. gr.,

og að teknu tilliti til eftirfarandi:

1)          Fella ber inn í EES-samninginn tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/99/ESB frá 21. október 2014 um breytingu á tilskipun 2009/126/EB um II. áfanga endurheimtar bensíngufu við eldsneytistöku fyrir vélknúin ökutæki á bensínstöðvum í því skyni að laga hana að tækniframförum ( 1 ).

2)          XX. viðauki við EES-samninginn breytist því í samræmi við það.

ÁKVÖRÐUNIN ER SVOHLJÓÐANDI:

1. gr.


Eftirfarandi bætist við í lið 21au (tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/126/EB) í XX. viðauka við EES-samninginn:

„eins og henni var breytt með:

–         32014 L 0099: Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/99/ESB frá 21. október 2014 (Stjtíð. ESB L 304, 23.10.2014, bls. 89).“

2. gr.


Íslenskur og norskur texti tilskipunar 2014/99/ESB, sem verður birtur í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, telst fullgiltur.

3. gr.


Ákvörðun þessi öðlast gildi 1. maí 2015, að því tilskildu að allar tilkynningar samkvæmt 1. mgr. 103. gr. EES-samningsins hafi borist ( * ).

4. gr.


Ákvörðun þessi skal birt í EES-deild Stjórnartíðinda Evrópusambandsins og EES-viðbæti við þau.

Gjört í Brussel 30. apríl 2015.

Fyrir hönd sameiginlegu EES-nefndarinnar

Gianluca Grippa

formaður.



Fylgiskjal II.


Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/99/ESB frá 21. október 2014 um breytingu á tilskipun 2009/126/EB um II. áfanga endurheimtar bensíngufu við eldsneytistöku fyrir vélknúin ökutæki á bensínstöðvum í því skyni að laga hana að tækniframförum.

www.althingi.is/altext/pdf/145/fylgiskjol/s0191-f_II.pdf

Neðanmálsgrein: 1
(1) Stjtíð. ESB L 304, 23.10.2014, bls. 89.
Neðanmálsgrein: 2
(*) Stjórnskipuleg skilyrði gefin til kynna.