Ferill 187. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.



Þingskjal 192  —  187. mál.



Tillaga til þingsályktunar

um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 143/2015 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn.

(Lögð fyrir Alþingi á 145. löggjafarþingi 2015–2016.)




    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 143/2015, frá 11. júní 2015, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og fella inn í samninginn þrjár gerðir:
     1.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 168/2013 frá 15. janúar 2013 um viðurkenningu á og markaðseftirlit með vélknúnum ökutækjum á tveimur eða þremur hjólum og fjórhjólum.
     2.      Framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 3/2014 frá 24. október 2013 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 168/2013 að því er varðar kröfur um notkunaröryggi fyrir ökutæki vegna viðurkenningar á ökutækjum á tveimur eða þremur hjólum og fjórhjólum.
     3.      Framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 44/2014 frá 21. nóvember 2013 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 168/2003 að því er varðar kröfur um smíði ökutækja og almennar kröfur vegna viðurkenningar á ökutækjum á tveimur eða þremur hjólum og fjórhjólum.

Athugasemdir við þingsályktunartillögu þessa.

1. Inngangur.
    Með þingsályktunartillögu þessari er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 143/2015, frá 11. júní 2015, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og til að fella inn í samninginn þrjár gerðir:
     1.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 168/2013 frá 15. janúar 2013 um viðurkenningu á og markaðseftirlit með vélknúnum ökutækjum á tveimur eða þremur hjólum og fjórhjólum.
     2.      Framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 3/2014 frá 24. október 2013 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 168/2013 að því er varðar kröfur um notkunaröryggi fyrir ökutæki vegna viðurkenningar á ökutækjum á tveimur eða þremur hjólum og fjórhjólum.
     3.      Framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 44/2014 frá 21. nóvember 2013 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 168/2003 að því er varðar kröfur um smíði ökutækja og almennar kröfur vegna viðurkenningar á ökutækjum á tveimur eða þremur hjólum og fjórhjólum.
    Markmiðið með reglugerð (ESB) nr. 168/2013 er að styrkja löggjöf og reglur um viðkomandi gerðir ökutækja auk þess að efla samræmingu í ESB-gerðarviðurkenningum bifhjóla. Með reglugerðum (ESB) nr. 3/2014 og (ESB) nr. 44/2014 eru settar fram nánari tæknilegar kröfur og aðferðir við prófun sömu gerða ökutækja, framleiðslu þeirra og markaðseftirlit með þeim.
    Í tillögu þessari er gerð grein fyrir efni gerðanna sem um ræðir, en þær fela ekki í sér breytingar á þeim meginreglum sem í EES-samningnum felast. Ákvörðun sameiginlegu EES- nefndarinnar sem hér um ræðir er fylgiskjal með tillögu þessari ásamt gerðinni sjálfri.

2. Um stjórnskipulegan fyrirvara.
    Samkvæmt EES-samningnum skuldbinda ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar aðildarríkin að þjóðarétti um leið og þær hafa verið teknar, nema eitthvert þeirra beiti heimild í 103. gr. EES-samningsins til að setja fyrirvara um að ákvörðun geti ekki orðið bindandi strax vegna stjórnskipulegra skilyrða heima fyrir. Viðkomandi aðildarríki hefur þá sex mánaða frest frá töku ákvörðunar í sameiginlegu nefndinni til að aflétta fyrirvaranum.
    Að því er Ísland varðar hefur stjórnskipulegur fyrirvari almennt einungis verið settur þegar innleiðing ákvörðunar kallar á lagabreytingar hér landi, en í því tilviki leiðir af 21. gr. stjórnarskrárinnar að afla ber samþykkis Alþingis áður en ákvörðun er staðfest. Slíkt samþykki getur Alþingi alltaf veitt samhliða viðeigandi lagabreytingu, en jafnframt getur Alþingi heimilað stjórnvöldum að skuldbinda sig að þjóðarétti með þingsályktun áður en landsréttinum er með lögum breytt til samræmis við viðkomandi ákvörðun.
    Áðurnefnd 21. gr. stjórnarskrárinnar tekur til gerðar þjóðréttarsamninga en hún á augljóslega einnig við um þau tilvik þegar breytingar eru gerðar á slíkum samningum. Samkvæmt ákvæðinu er samþykki Alþingis áskilið ef samningur felur í sér afsal eða kvaðir á landi eða landhelgi eða ef hann horfir til breytinga á stjórnarhögum ríkisins. Síðarnefnda atriðið hefur verið túlkað svo að samþykki Alþingis sé áskilið ef gerð þjóðréttarsamnings kallar á lagabreytingar hér á landi.
    Umrædd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar felur í sér breytingu á EES- samningnum en þar sem hún kallar á lagabreytingar hér á landi var hún tekin með stjórnskipulegum fyrirvara. Í samræmi við það sem að framan segir og 7. mgr. 45. gr. laga nr. 55/1991, um þingsköp Alþingis, sem kveður á um að stjórnskipulegum fyrirvara skv. 103. gr. samningsins um Evrópska efnahagssvæðið beri að aflétta með þingsályktun, er óskað eftir samþykki Alþingis fyrir þeirri breytingu á EES-samningnum sem í ákvörðuninni felst.

3. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 168/2013 frá 15. janúar 2013 um viðurkenningu á og markaðseftirlit með vélknúnum ökutækjum á tveimur eða þremur hjólum og fjórhjólum, framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 3/2014 frá 24. október 2013 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 168/2013 að því er varðar kröfur um notkunaröryggi fyrir ökutæki vegna viðurkenningar á ökutækjum á tveimur eða þremur hjólum og fjórhjólum, og framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 44/2014 frá 21. nóvember 2013 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 168/2003 að því er varðar kröfur um smíði ökutækja og almennar kröfur vegna viðurkenningar á ökutækjum á tveimur eða þremur hjólum og fjórhjólum.
    Markmiðið með reglugerð (ESB) nr. 168/2013 er, eins og áður segir, að styrkja löggjöf og reglur um viðkomandi gerðir ökutækja auk þess að efla samræmingu í ESB- gerðarviðurkenningum bifhjóla. Með framseldum reglugerðum (ESB) nr. 3/2014 og (ESB) nr. 44/2014 eru settar fram nánari tæknilegar kröfur og aðferðir við prófun sömu gerða ökutækja, framleiðslu þeirra og markaðseftirlit með þeim.
    Með tilskipun 2002/24/EB um gerðarviðurkenningu á vélknúnum ökutækjum á tveimur eða þremur hjólum í því skyni að laga þær að tækniframförum var komið á heildstæðu EB- gerðarviðurkenningakerfi. Reglugerð (ESB) nr. 168/2013 kemur í stað tilskipunar 2002/24/EB og afleiddra gerða hennar frá 1. janúar 2016. Með reglugerð (ESB) nr. 168/2013 er löggjöf um ESB-gerðarviðurkenningar uppfærð með hliðsjón af meginreglunni um algera samhæfingu og áhersla lögð á einfaldar og skýrar reglur og meginregluna um frjálst flæði vöru. Kveðið er á um grundvallaratriði og meginreglur en framkvæmdastjórninni er falið vald til að skilgreina tæknilegar kröfur í afleiddum gerðum. Í reglugerðinni er fjallað á heildstæðan hátt um gerðarviðurkenningar þeirra ökutækja sem gerðin gildir um. Þar á meðal eru ákvæði um kröfur til framleiðenda og skyldur þeirra og skyldur yfirvalda á þessu sviði. Flokkar og undirflokkar bifhjóla eru skilgreindir ítarlegar en í fyrri löggjöf og ákvæði sett á sviði mengunarstaðla og markaðseftirlits. Meginbreytingin felst í því að framleiðendum gefst nú sjálfum færi á að sjá um vottun og útfyllingu skjala. Á móti kemur að verði vart við misferli skulu vera til viðurlög við því. Af þeim sökum er ríkjunum gert að setja í eigin löggjöf viðurlög við slíkum brotum. Þannig er í 76. gr. reglugerðarinnar aðildarríkjum gert að kveða á um sektir fyrir framleiðendur eða rekstraraðila sem gerast brotlegir við atriði sem eru talin upp í 2. mgr. 76. gr. Er hér um að ræða brot á borð við það að framvísa röngum yfirlýsingum sem leitt geta til innköllunar ökutækja, framvísun falsaðra prófunarniðurstaðna og það að gögnum sem varða tækniupplýsingar er leynt eða neitað er að afhenda þau. Það er af þessum sökum sem lagaheimild þarf til að innleiða gerðina á Íslandi.
    Framseldar reglugerðir (ESB) nr. 3/2014 og (ESB) nr. 44/2014 eru settar í samræmi við reglugerð (ESB) nr. 168/2013 og til nánari útfærslu á henni. Í reglugerð (ESB) nr. 3/2014 eru settar fram tæknilegar kröfur sem gerðar eru til framleiðenda ökutækja í L-flokki og aðferðir við prófun þeirra, íhluta og aðskildra tæknieininga fyrir þau, og markaðseftirlit með þeim. Í reglugerð (ESB) nr. 44/2014 eru settar fram tæknilegar kröfur og aðferðir við prófun á framleiðslu ökutækja og almennar kröfur sem gerðar eru til ökutækja í L-flokki. Þar eru jafnframt settir fram staðlar fyrir tæknilega þjónustu og matsaðferðir. Ökutæki sem falla í L- flokk eru til að mynda vélhjól, pallbílar á þremur hjólum og bifreiðar á fjórum hjólum sem eru innan við 400 kg að þyngd. Þyngd rafknúins ökutækis miðast við eigin þyngd án rafgeymis og þríhjóla ökutæki sem ekki fara hraðar en sem nemur 45 km/klst.

4. Lagabreytingar og hugsanleg áhrif hér á landi.
    Innleiðing reglugerðar (ESB) nr. 168/2013 hér á landi kallar á breytingu á umferðarlögum, nr. 50/1987, með síðari breytingum, vegna sektarákvæða í 76. gr. gerðarinnar. Þar sem framseldar reglugerðir (ESB) nr. 3/2014 og nr. 44/2014 eru nánari útfærsla á fyrstnefndu reglugerðinni er lagastoð til innleiðingar þeirra ekki heldur fyrir hendi. Gert er ráð fyrir því að innanríkisráðherra leggi fram frumvarp til breytinga á framangreindum lögum á yfirstandandi þingi.
    Áhrif af innleiðingu gerðanna hér á landi eru aðeins óbein þar sem þær gerðir ökutækja sem gerðirnar taka til eru ekki framleidd hér.


Fylgiskjal I.


ÁKVÖRÐUN SAMEIGINLEGU EES-NEFNDARINNAR nr. 143/2015

frá 11. júní 2015

um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun)við EES-samninginn


SAMEIGINLEGA EES-NEFNDIN HEFUR TEKIÐ NEÐANGREINDA ÁKVÖRÐUN

með vísan til samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, er nefnist „EES-samningurinn“ í því sem hér fer á eftir, einkum ákvæða 98. gr.,

og að teknu tilliti til eftirfarandi:

1)          Fella ber inn í EES-samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 168/2013 frá 15. janúar 2013 um viðurkenningu á og markaðseftirlit með vélknúnum ökutækjum á tveimur eða þremur hjólum og fjórhjólum ( 1 ).

2)          Fella ber inn í EES-samninginn framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 3/2014 frá 24. október 2013 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 168/2013 að því er varðar kröfur um notkunaröryggi fyrir ökutæki vegna viðurkenningar á ökutækjum á tveimur eða þremur hjólum og fjórhjólum ( 2 ).

3)          Fella ber inn í EES-samninginn framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 44/2014 frá 21. nóvember 2013 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 168/2003 að því er varðar kröfur um smíði ökutækja og almennar kröfur vegna viðurkenningar á ökutækjum á tveimur eða þremur hjólum og fjórhjólum ( 3 ).

4)          Samkvæmt ákvæðum reglugerðar (ESB) nr. 168/2013 falla úr gildi, frá og með 1. janúar 2016, tilskipun ráðsins 93/14/EBE ( 4 ), tilskipun ráðsins 93/30/EBE ( 5 ), tilskipun ráðsins 93/33/EBE ( 6 ), tilskipun ráðsins 93/93/EBE ( 7 ), tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 95/1/EB ( 8 ), tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 97/24/EB ( 9 ), tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2000/7/EB ( 10 ), tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2002/24/EB ( 11 ), tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2002/51/EB ( 12 ), tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/62/EB ( 13 ), tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/67/EB ( 14 ), tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/78/EB ( 15 ), tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/79/EB ( 16 ), tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/80/EB ( 17 ) og tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/139/EB ( 18 ), en þær gerðir hafa verið felldar inn í EES- samninginn og ber því að fella þær úr EES-samningnum frá og með 1. janúar 2016.

5)          Af hagkvæmniástæðum skal endurtölusetja gerðirnar sem taldar eru upp undir fyrirsögninni „GERÐIR SEM SAMNINGSAÐILAR SKULU TAKA MIÐ AF“ í I. kafla II. viðauka.

6)          II. viðauki við EES-samninginn breytist því í samræmi við það.

ÁKVÖRÐUNIN ER SVOHLJÓÐANDI:

1. gr.


Ákvæði I. kafla II. viðauka við EES-samninginn breytist sem hér segir:

     1.      Eftirfarandi liðir bætist við á eftir lið 45zzu (reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1230/2012:

        „46.     32013 R 0168: Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 168/2013 frá 15. janúar 2013 um viðurkenningu á og markaðseftirlit með vélknúnum ökutækjum á tveimur eða þremur hjólum og fjórhjólum (Stjtíð. ESB L 60, 2.3.2013, bls. 52).

        46a.     32014 R 0003: Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 3/2014 frá 24. október 2013 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 168/2013 að því er varðar kröfur um notkunaröryggi fyrir ökutæki vegna viðurkenningar á ökutækjum á tveimur eða þremur hjólum og fjórhjólum (Stjtíð. ESB L 7, 10.1.2014, bls. 1).

        46b.     32014 R 0044: Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 44/2014 frá 21. nóvember 2013 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 168/2003 að því er varðar kröfur um smíði ökutækja og almennar kröfur vegna viðurkenningar á ökutækjum á tveimur eða þremur hjólum og fjórhjólum (Stjtíð. ESB L 25, 28.1.2014, bls. 1).“

     2.      Texti liðar 45h (tilskipun ráðsins 93/14/EBE), liðar 45i (tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/80/EB), liðar 45j (tilskipun ráðsins 93/30/EBE), liðar 45l (tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/79/EB), liðar 45m (tilskipun ráðsins 93/33/EBE), liðar 45n (tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/139/EB), liðar 45p (tilskipun ráðsins 93/93/EBE), liðar 45q (tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/62/EB), liðar 45s (tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 95/1/EB), liðar 45x (tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 97/24/EB), liðar 45z (tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2000/7/EB), liðar 45za (tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2002/24/EB), liðar 45zb (tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2002/51/EB), liðar 45zv (tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/67/EB) og liðar 45zw (tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/78/EB) falli brott frá og með 1. janúar 2016.

     3.      Liðir 46 (fallinn brott) til 48 (túlkunarorðsending framkvæmdastjórnarinnar 2007/C 68/04) undir fyrirsögninni „GERÐIR SEM SAMNINGSAÐILAR SKULU TAKA MIÐ AF“ eru endurtölusettir sem 1. til 3. liður.

2. gr.


Íslenskur og norskur texti reglugerðar (ESB) nr. 168/2013 og framseldra reglugerða (ESB) nr. 3/2014 og (ESB) nr. 44/2014, sem verður birtur í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, telst fullgiltur.

3. gr.


Ákvörðun þessi öðlast gildi 12. júní 2015, að því tilskildu að allar tilkynningar samkvæmt 1. mgr. 103. gr. EES-samningsins hafi borist ( * ).

4. gr.


Ákvörðun þessi skal birt í EES-deild Stjórnartíðinda Evrópusambandsins og EES-viðbæti við þau.

Gjört í Brussel 11. júní 2015.

Fyrir hönd sameiginlegu EES-nefndarinnar

Gianluca Grippa

formaður.




Fylgiskjal II.


Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 168/2013 frá 15. janúar 2013 um viðurkenningu á og markaðseftirlit með vélknúnum ökutækjum á tveimur eða þremur hjólum og fjórhjólum.
(Óumbrotinn texti.)

www.althingi.is/altext/pdf/145/fylgiskjol/s0192-f_II.pdf



Fylgiskjal III.


Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 3/2014 frá 24. október 2013 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 168/2003 að því er varðar kröfur um notkunaröryggi fyrir ökutæki vegna viðurkenningar á ökutækjum á tveimur eða þremur hjólum og fjórhjólum.
(Óumbrotinn texti.)

www.althingi.is/altext/pdf/145/fylgiskjol/s0192-f_III.pdf




Fylgiskjal IV.


Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 44/2014 frá 21. nóvember 2013 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 168/2013 að því er varðar kröfur um smíði ökutækja og almennar kröfur vegna viðurkenningar á ökutækjum á tveimur eða þremur hjólum og fjórhjólum.
(Óumbrotinn texti.)

www.althingi.is/altext/pdf/145/fylgiskjol/s0192-f_IV.pdf

Neðanmálsgrein: 1
(1)    Stjtíð. ESB L 60, 2.3.2013, bls. 52.
Neðanmálsgrein: 2
(2)    Stjtíð. ESB L 7, 10.1.2014, bls. 1.
Neðanmálsgrein: 3
(3)    Stjtíð. ESB L 25, 28.1.2014, bls. 1.
Neðanmálsgrein: 4
(4)    Stjtíð. EB L 121, 15.5.1993, bls. 1.
Neðanmálsgrein: 5
(5)    Stjtíð. EB L 188, 29.7.1993, bls. 11.
Neðanmálsgrein: 6
(6)    Stjtíð. EB L 188, 29.7.1993, bls. 32.
Neðanmálsgrein: 7
(7)    Stjtíð. EB L 311, 14.12.1993, bls. 76.
Neðanmálsgrein: 8
(8)    Stjtíð. EB L 52, 8.3.1995, bls. 1.
Neðanmálsgrein: 9
(9)    Stjtíð. EB L 226, 18.8.1997, bls. 1.
Neðanmálsgrein: 10
(10)    Stjtíð. EB L 106, 3.5.2000, bls. 1.
Neðanmálsgrein: 11
(11)    Stjtíð. EB L 124, 9.5.2002, bls. 1.
Neðanmálsgrein: 12
(12)    Stjtíð. EB L 252, 20.9.2002, bls. 20.
Neðanmálsgrein: 13
(13)    Stjtíð. ESB L 198, 30.7.2009, bls. 20.
Neðanmálsgrein: 14
(14)    Stjtíð. ESB L 222, 25.8.2009, bls. 1.
Neðanmálsgrein: 15
(15)    Stjtíð. ESB L 231, 3.9.2009, bls. 8.
Neðanmálsgrein: 16
(16)    Stjtíð. ESB L 201, 1.8.2009, bls. 29.
Neðanmálsgrein: 17
(17)    Stjtíð. ESB L 202, 4.8.2009, bls. 16.
Neðanmálsgrein: 18
(18)    Stjtíð. ESB L 322, 9.12.2009, bls. 3.
Neðanmálsgrein: 19
(*)    Stjórnskipuleg skilyrði gefin til kynna.