Ferill 189. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.



Þingskjal 194  —  189. mál.



Tillaga til þingsályktunar

um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 117/2015 um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál) við EES-samninginn.

(Lögð fyrir Alþingi á 145. löggjafarþingi 2015–2016.)




    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 117/2015, frá 30. apríl 2015, um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/52/ESB frá 16. apríl 2014 um breytingu á tilskipun 2011/92/ ESB um mat á áhrifum sem tilteknar framkvæmdir á vegum hins opinbera eða einkaaðila kunna að hafa á umhverfið.

Athugasemdir við þingsályktunartillögu þessa.

1. Inngangur.
    Með þingsályktunartillögu þessari er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 117/2015, frá 30. apríl 2015, um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og til að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/52/ESB frá 16. apríl 2014 um breytingu á tilskipun 2011/92/ESB um mat á áhrifum sem tilteknar framkvæmdir á vegum hins opinbera eða einkaaðila kunna að hafa á umhverfið.
    Tilskipun 2014/52/ESB breytir tilskipun 2011/92/ESB hvað varðar skilgreiningu á umhverfismati, þá þætti sem ber að horfa til við mat á umhverfisáhrifum og skilgreiningu á hámarksafgreiðslutíma við ákvörðun um matsskyldu, auk fleiri reglna á þessu sviði.
    Í tillögu þessari er gerð grein fyrir efni gerðarinnar sem hér um ræðir, en hún felur ekki í sér breytingar á þeim meginreglum sem í EES-samningnum felast. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar sem hér um ræðir er fylgiskjal með tillögu þessari ásamt gerðinni sjálfri.

2. Um stjórnskipulegan fyrirvara.
    Samkvæmt EES-samningnum skuldbinda ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar aðildarríkin að þjóðarétti um leið og þær hafa verið teknar, nema eitthvert þeirra beiti heimild í 103. gr. EES-samningsins til að setja fyrirvara um að ákvörðun geti ekki orðið bindandi strax vegna stjórnskipulegra skilyrða heima fyrir. Viðkomandi aðildarríki hefur þá sex mánaða frest frá töku ákvörðunar í sameiginlegu nefndinni til að aflétta fyrirvaranum.
    Að því er Ísland varðar hefur stjórnskipulegur fyrirvari almennt einungis verið settur þegar innleiðing ákvörðunar kallar á lagabreytingar hér landi, en í því tilviki leiðir af 21. gr. stjórnarskrárinnar að afla ber samþykkis Alþingis áður en ákvörðun er staðfest. Slíkt samþykki getur Alþingi alltaf veitt samhliða viðeigandi lagabreytingu, en jafnframt getur Alþingi heimilað stjórnvöldum að skuldbinda sig að þjóðarétti með þingsályktun áður en landsréttinum er með lögum breytt til samræmis við viðkomandi ákvörðun.
    Áðurnefnd 21. gr. stjórnarskrárinnar tekur til gerðar þjóðréttarsamninga en hún á augljóslega einnig við um þau tilvik þegar breytingar eru gerðar á slíkum samningum. Samkvæmt ákvæðinu er samþykki Alþingis áskilið ef samningur felur í sér afsal eða kvaðir á landi eða landhelgi eða ef hann horfir til breytinga á stjórnarhögum ríkisins. Síðarnefnda atriðið hefur verið túlkað svo að samþykki Alþingis sé áskilið ef gerð þjóðréttarsamnings kallar á lagabreytingar hér á landi.
    Umrædd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar felur í sér breytingu á EES-samningnum en þar sem hún kallar á lagabreytingar hér á landi var hún tekin með stjórnskipulegum fyrirvara. Í samræmi við það sem að framan segir og 7. mgr. 45. gr. laga nr. 55/1991, um þingsköp Alþingis, sem kveður á um að stjórnskipulegum fyrirvara skv. 103. gr. samningsins um Evrópska efnahagssvæðið beri að aflétta með þingsályktun, er óskað eftir samþykki Alþingis fyrir þeirri breytingu á EES-samningnum sem í ákvörðuninni felst.

3. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/52/ESB frá 16. apríl 2014 um breytingu á tilskipun 2011/92/ESB um mat á áhrifum sem tilteknar framkvæmdir á vegum hins opinbera eða einkaaðila kunna að hafa á umhverfið.
    Tilskipun 2014/52/ESB breytir, eins og áður segir, tilskipun 2011/92/ESB hvað varðar skilgreiningu á umhverfismati, þá þætti sem ber að horfa til við mat á umhverfisáhrifum og skilgreiningu á hámarksafgreiðslutíma við ákvörðun um matsskyldu, auk fleiri reglna á þessu sviði.
    Tilskipun 2014/52/ESB hefur það að markmiði að einfalda stjórnsýslu og auðvelda mat án þess að draga úr réttarvernd umhverfisins sem þegar er fyrir hendi. Henni er ætlað að styrkja ákvarðanatöku og umhverfisvernd og samræma og einfalda regluverk.
    Með gerðinni er umhverfismat m.a. skilgreint á þann hátt að það nái yfir veitingu leyfa. Þá er afgreiðslutími stjórnvalds skilgreindur að hámarki 90 dagar fyrir ákvörðun um hvort framkvæmd skuli háð umhverfismati. Samráð við almenning skal vera að lágmarki 30 dagar og skal niðurstaða varðandi hvert mál lögð fram innan eðlilegra tímamarka. Jafnframt er kveðið á um að niðurstaða umhverfismats þurfi að vera enn í gildi þegar leyfi eru veitt til framkvæmda. Þegar leyfi eru veitt skulu þau vera skýrari fyrir almenningi en áður og geta aðildarríki einnig takmarkað gildistíma niðurstaðna og álita sem þau gefa út sem hluta af umhverfismati. Ef verkefni hafa veruleg neikvæð áhrif á umhverfið verður þess krafist að framkvæmdaraðilar dragi úr þeim eftir megni en eftirlit er sem fyrr í höndum aðildarríkjanna. Þá er áhersla lögð á að tryggja gæði matsskýrslu með aðkomu viðeigandi sérfræðinga og á þann hátt að sérfræðiþekking sé til staðar hjá viðkomandi stjórnvaldi. Matsskýrslur skulu vera aðgengilegri almenningi en þær hafa verið til þessa, sérstaklega hvað varðar mat á núverandi ástandi umhverfisins og valkosti aðra en þá er viðkomandi tillaga mælir fyrir um.

4. Lagabreytingar og hugsanleg áhrif hér á landi.
    Innleiðing tilskipunar 2014/52/ESB hér á landi kallar á breytingar á lögum nr. 106/2000, um mat á umhverfisáhrifum, með síðari breytingum. Ísland þarf að innleiða tilskipunina eigi síðar en 16. maí 2017. Gert er ráð fyrir því að umhverfis- og auðlindaráðherra leggi fram frumvarp til breytinga á framangreindum lögum haustið 2016.



Fylgiskjal I.


ÁKVÖRÐUN SAMEIGINLEGU EES-NEFNDARINNAR
nr. 117/2015
frá 30. apríl 2015
um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál) við EES-samninginn


SAMEIGINLEGA EES-NEFNDIN HEFUR TEKIÐ NEÐANGREINDA ÁKVÖRÐUN
með vísan til samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, er nefnist „EES-samningurinn“ í því sem hér fer á eftir, einkum ákvæða 98. gr.,

og að teknu tilliti til eftirfarandi:

     1)      Fella ber inn í EES-samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/52/ESB frá 16. apríl 2014 um breytingu á tilskipun 2011/92/ESB um mat á áhrifum sem tilteknar framkvæmdir á vegum hins opinbera eða einkaaðila kunna að hafa á umhverfið ( 1 ).

     2)      XX. viðauki við EES-samninginn breytist því í samræmi við það.

ÁKVÖRÐUNIN ER SVOHLJÓÐANDI:

1. gr.


Eftirfarandi bætist við í lið 1a (tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/92/ESB) í XX. viðauka við EES-samninginn:

„eins og henni var breytt með:

          32014 L 0052: Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/52/ESB frá 16. apríl 2014 (Stjtíð. ESB L 124, 25.4.2014, bls. 1).

Ákvæði tilskipunarinnar skulu, að því er samning þennan varðar, aðlöguð sem hér segir:

Vísanir í löggjöf Sambandsins í tilskipuninni skulu gilda að svo miklu leyti og í þeirri mynd sem viðkomandi Sambandsgerðir hafa verið felldar inn í samning þennan.“

2. gr.


Íslenskur og norskur texti tilskipunar 2014/52/ESB, sem verður birtur í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, telst fullgiltur.

3. gr.


Ákvörðun þessi öðlast gildi 1. maí 2015, að því tilskildu að allar tilkynningar samkvæmt 1. mgr. 103. gr. EES-samningsins hafi borist ( * ).

4. gr.


Ákvörðun þessi skal birt í EES-deild Stjórnartíðinda Evrópusambandsins og EES-viðbæti við þau.


Gjört í Brussel 30. apríl 2015.
Fyrir hönd sameiginlegu EES-nefndarinnar
Gianluca Grippa
formaður.




Fylgiskjal II.


Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/52/ESB frá 16. apríl 2014
um breytingu á tilskipun 2011/92/ESB um mat á áhrifum sem
tilteknar framkvæmdir á vegum hins opinbera eða einkaaðila
kunna að hafa á umhverfið.


www.althingi.is/altext/pdf/145/fylgiskjol/s0194-f_II.pdf



Neðanmálsgrein: 1
(1)    Stjtíð. ESB L 124, 25.4.2014, bls. 1.
Neðanmálsgrein: 2
(*)    Stjórnskipuleg skilyrði gefin til kynna.