Ferill 192. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 197  —  192. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um öryggisreglur fyrir hópferðabíla og strætisvagna.

Frá Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur.


     1.      Hvaða reglur gilda um öryggisbelti í hópferðabílum og strætisvögnum?
     2.      Hver er munurinn á öryggisreglum fyrir strætisvagna og hópferðabíla í skipulögðum ferðum um landið, svo sem frá Reykjavík til Borgarness eða Akureyrar? Hver eru rökin fyrir mismunandi reglum?
     3.      Mega hópferðabílar eða strætisvagnar aka með farþega standandi styttri eða lengri vegalengdir í skipulögðum ferðum um landið?