Ferill 207. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 213  —  207. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um dýravernd.

Frá Svandísi Svavarsdóttur.


     1.      Hver er staðan á framkvæmd laga um velferð dýra sem sett voru á Alþingi 2013?
     2.      Hafa allar reglugerðir sem ætlunin var að settar yrðu á grundvelli laganna verið settar?
     3.      Telur ráðherra dýraverndarmál í ásættanlegum farvegi hérlendis?
     4.      Hvar telur ráðherra að úrbóta sé helst þörf hvað varðar dýravernd?