Ferill 221. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 229  —  221. mál.




Fyrirspurn



til fjármála- og efnahagsráðherra um skatta og gjöld á vistvæn ökutæki og eldsneyti.

Frá Katrínu Júlíusdóttur.


    Hvað líður skipan starfshóps um skatta og gjöld á vistvæn ökutæki og eldsneyti sem ráðherra boðaði í fyrstu umræðu um frumvarp til laga um ýmsar forsendur fjárlaga?